Opna Bautamótið handan við hornið – Sölusýning sama dag
Opna Bautamótið í tölti fer fram í Skautahöllinni á Akureyri, laugardaginn 19. febrúar n.k. og hefst kl. 20. Bautinn á Akureyri stendur fyrir mótinu nú á fertugasta afmælisári sínu en Bautinn hefur verið starfræktur frá árinu 1971.
Skráning er hafin og hér má sjá nánari upplýsingar fyrir gesti sem og keppendur:
Skráningargjald er kr. 2.500.-
Keppendur skulu hafa náð 16 ára aldri.
Hjálmaskylda á svellinu.
Keppendum er heimilt að skrá fleiri en eitt hross til leiks.
Riðnir þrír hringir á tölti (hægt, hraðamun og fegurðar).
Tvöfalt vægi er á hægatöltinu.
Æfingatími fyrir keppendur er föstudagskvöldið 18. febrúar kl. 21:15 – 22:15 (innifalið í skráningagjaldi). Þar hafa einungis rétt á að mæta þau hross sem skráð eru til leiks með „sínum“ knöpum.
Þátttökugjald greiðist á staðnum.
Tekið er við skráningum í netfang [email protected] og í símum: 462-2101, 893-9579 (Anna) og 893-1579 (Arnar) til kl. 21 miðvikudagskvöldið 16. feb. n.k.
Að móti loknu verður opið hús í Top Reiter höllinni, reiðhöll Léttisfélaga.
Aðgangseyrir að mótinu er kr. 1.500 en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Sama dag mun verða haldin sölusýning hrossa í Top Reiter höllinni og hefst hún kl. 13.
Nánari upplýsingar og skráning á hana mun verða í gegnum heimasíðu Léttis, þegar nær dregur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH