Skráning í Meistaradeild UMFÍ og LH á miðvikudag
Meistaradeild UMFÍ og LH verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 12. febrúar og verður keppt í fjórgangi og T2. Mótið er opið öllum unglingum og ungmennum 14 til 21 árs.
Tekið verður á móti skráningum í andyri Reiðhallarinnar í Víðidal og í símum 5670100, 6604606 og 6604612 miðvikudaginn 9. febrúar frá kl. 19:00 til 21:00. Greiða þarf við skráningu, ekki verður tekið á móti skráningum eftir auglýstan skráningartíma, skráningargjald er 2.000 kr. á grein, aðeins er hægt að skrá einn hest í hvora grein. Riðin verða A og B úrslit.
Þetta mót er tilvalið að fyrir þá sem vilja spreyta sig á að ríða meistaraprógramm, það er einn keppandi inná í einu í fjórgang en þrír í tölti T2.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH