Vangaveltur á sunnudegi – Minnisvarði um Höskuld
Eftir að hafa kynnt Dagbjarti Kort Dagbjartssyni í Hrísum hugmyndina, lýsti hann henni í meðfylgjandi vísu…
er hann gerði að minni ósk.
Heiðursgerði hestamann
hérna gleður flesta.
Lengi megi minnast hans
menn sem fást við hesta.
Í vor og sumar lét ég verða af því sem mig hafði dreymt lengi um, að festa á filmu annars vegar þá Gísla Höskuldsson frá Hofsstöðum og gæðinginn Hauk, sem nú er 29 vetra og hins vegar Ingimar Sveinsson á Hvanneyri og 26 vetra gæðing hans Pílatus. Á hestasýningu Borgfirðinga sem haldin var í reiðhöll Fáks í Reykjavík 1992 voru þessir fjórir höfðingjar stolt okkar Vestlendinga og hápunktur þeirrar sýningar.
Þeir Gísli og Ingimar hafa nú fallist á að leggja sitt að mörkum til að reisa megi Höskuldi Eyjólfssyni á Hofsstöðum verðugan minnisvarða. Honum er ætlaður staður við hrossagerði sem hlaðið hefur verið í brekkunni við kirkjuna í Reykholti og til stendur að nefna Höskuldargerði. Ráðgert er að afhjúpa bautastein og vígja gerðið 17. júní 2011.
Páll Guðmundsson listamaður í Húsafelli hefur tekið að sér að höggva í stein mynd af Höskuldi, en jafnframt verður festur á steininn eða við hann minningarskjöldur.
Framlag þeirra og mitt er þá fólgið í því að gefa mönnum kost á að styrkja verkefnið með 5.000 kr. og fá sem þakklætisvott eintak af myndunum af þeim á Hauki og Pílatusi.
Formlega hófst söfnunin með því að ég fór í réttir hér um slóðir með tvo gráa hesta, annan undir trússi Höskuldar, og gaf mönnum kost á að skrifa sig á styrktarlista og fá þá mynddiskinn afhentan. Einnig verður áfram unnt að hafa samband við mig á netfang: [email protected] eða í síma 8 – 61 -59 – 71.
Réttirnar sem ég fór í eru Fljótstungurétt, laugardaginn 11. september, Oddsstaðarétt, miðvikudaginn 15. september og Þverárrétt, mánudaginn 20. september. Einnig lagði ég leið mína í Grímsstaðarétt, en þá að vísu hestlaus.
Einhvern finn ég innri frið,
þó æði vindar svalir,
þegar bjartir blasa við
Borgarfjarðardalir.
Svo kvað Höskuldur og ég veit að margur hefur fundið það sama og hann á sínu eigin skinni sem sinni. Með því held ég nú ótrauður áfram þessu verkefni, þakklátur fyrir að hafa átt hann sem vin og fyrirmynd í reiðmennsku og jákvæðri lífsafstöðu.
Með góðri kveðju, nú í Reykholti en lengi áður á Kleppjárnsreykjum,
23. september 2010,
Guðlaugur Óskarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH