Kynbótasýningu í Þýskalandi aflýst vegna kórónaveirunnar

  • 30. mars 2020
  • Fréttir

Kynbótasýningar á Íslandi hefjast í lok maí þá standa vonir til að samkomubanni verði aflétt, á myndinni er Suðurey frá Skíðbakka III og Árni Björn Pálsson á kynbótasýningu á Hellu

Vegna þess fordæmalausa ástands sem nú ríkir, er búið að aflýsa kynbótasýningu sem halda átti í Wurz frá 29.04 – 1.05 2020. Ekki er hægt að taka ákvörðun um hvort aðrar kynbótasýningar á árinu 2020 í Þýskalandi verði haldnar fyrr en eftir páska.

Kynbótasýningar á Íslandi hefjast ekki fyrr en síðustu vikuna í maí en hér fyrir neðan er sýningaáætlun ársins 2020.

Sýningaáætlun 2020:

  • 22.5 – 29. 5 Hafnarfjörður I
  • 22.5 – 29. 5 Selfoss
  • 22.5 – 29. 5 Akureyri
  • 2.6 – 5.6 Stekkhólmi
  • 2.6 – 5.6 Sprettur í Kópavogi
  • 2.6 – 5.6 Hella I
  • 8.6 – 12.6 Hafnarfjörður II
  • 8.6 – 12.6 Hólar I
  • 8.6 – 12.6 Hella II
  • 15.6 – 19.6 Hafnarfjörður III
  • 15.6 – 19.6 Hólar II
  • 15.6 – 19.6 Víðidalur í Reykjavík
  • 15.6 – 19.6 Hella III
  • 6.7 – 12.7 Landsmót – Hella
  • 20.7 – 24.7 Miðs. Hólar
  • 20.7 – 24.7 Miðs. Hella
  • 17.8 – 21.8 Síðs. Hella
  • 17.8 – 21.8 Síðs. Hólar
  • 17.8 – 21.8 Síðs. Hafnarfjörður

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link