Vinnur þú ferð á HM2013 eða folatoll?

  • 27. júní 2012
  • Fréttir
Vinnur þú ferð á HM2013 eða folatoll?

Landsliðsnefnd LH er með sölu á happdrættismiðum á landsmótssvæðinu, nánar tiltekið í bás nefndarinnar á veitingasvæðinu, og rennur allur ágóði til íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem fara mun á heimsmeistaramótið í Berlín 2013.

Vinningarnir eru sannarlega af betra taginu en það eru folatollar undir Spuna frá Vesturkoti, Konsert frá Korpu, Sæ frá Bakkakoti og Hrímni frá Ósi og ferð á HM2013 í Berlín. Aðrir vinningar eru gjafabréf frá Líflandi, gjafabréf frá Kerckhaert, DVD frá LM2011, ársáskrift að Hestablaðinu, ársáskrift að LH Tv og að auki fylgir öllum keyptum miðum frír aðgangur að netútgáfu Eiðfaxa.

Komdu við í bás landsliðsnefndar LH og freistaðu gæfunnar!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link