Námskeið fyrir nýliða
“Nú ætlar Hestamannafélagið Fákur að styðja unga upprennandi hestamenn til að stíga sín fyrstu skref sem hestamann og bjóða upp á aðstöðu og aðstæður til að stunda hestamennsku. Um er að ræða nýliðunarnámskeið sem Fákur býður upp á þar sem unglingar fá aðgang að hesti, allri aðstöðu og reiðkennara sem leiðbeinir þeim að verða betri knapar og hestamenn.
Fákur skaffar:
Hest
Reiðtygi (nema reiðhjálm sem hver þátttakandi verður að koma með sjálfur fyrir sig)
Hesthús og fóður
Reiðkennara
Það sem þátttakendur þurfa að gera er;
Mæta og stunda sinn hest og hafa gaman að undir leiðsögn reiðkennara.
Kostnaður fyrir nemendur er kr. 15.000 á mánuði og hægt verður að nýta frístundakort Reykjavíkurborgar.
Unglingar fædd 1997 – 2000 ganga fyrir en í boði eru 12 pláss. Hver unglingur fær sinn hest og reiðtygi tvisvar í viku (dagarnir verða ákveðnir). Reiðkennari er á staðnum frá kl. 16:30 – 18:30 og leiðbeinir unglingunum með sína hestamennsku en það eru 4 unglingar í hverjum hópi sem eiga rétt á að mæta hvern dag. Þátttakendur geta valið daga 2 í viku til að mæta en mælst er með að það líði nokkrir dagar á milli. (mætingatímar):
Mánudaga og fimmtudaga
Þriðjudaga og föstudaga
Miðvikudaga og laugardaga
Reiðkennari/leiðbeinandi er við frá kl. 16:30 – 18:30 alla virka daga og á laugardögum frá kl. 13:00 – 15:00
Skráning á [email protected] og koma þarf fram nafn, kennitala, sími, netfang, hvaða daga valdir eru osfrv,“ segir á heimasíðu Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH