Gæðingar í beinni
Úrslit í gæðingakeppni á landsmóti hestamanna í Reykjavík verða sýnd í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 sport og visir.is á sunnudag.
Sýnt verður frá A-úrslitum í ungmennaflokki, B-flokki gæðinga, unglingaflokki og endað á hápunkti landsmótsins, A-flokki gæðinga. Jafnframt verður sýnt frá úrslitareið í tölti sem fram fór á laugardagskvöldi.
Útsending hefst samkvæmt dagskrá klukkan tíu að morgni og áætlað er að hún standi yfir til klukkan þrjú eða þar til mótinu er slitið. Kynnir verður Telma L. Tómasson fréttamaður og með henni verður Hafliði Halldórsson hestamaður, dómari og hrossaræktandi, sem mun skýra það sem fyrir augu ber, fara yfir keppnisreglur og greina frá ýmsum spennandi hliðum á hestamennsku og gæðingakeppni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH