Léttismenn reisa Bakkahöll á Kaupangsbökkum
Að jörðinni Kaupangsbökkum, sem er um það bil 5-6 km sunnan Akureyrar, hefur hestamannafélagið Léttir um árabil átt griðastað. Þangað er algengt að sjá hestamenn ríða ýmist með rekstur, með nokkra til reiðar eða þá einhesta. Nú er verið að reisa nýja göngu- og reiðbrú sunnan flugvallarins sem mun tengja hestamenn enn þá betur við þessa paradís.
Að Kaupangsbökkum er beitiland fyrir Léttismenn en þar eru 15 stór beitarhólf til leigu gegn vægu gjaldi, svokallað næturhólf er einnig til staðar þar sem ferðalangar geta haft hrossin sín yfir nótt við upphaf ferðar eða við ferðalok. Kaupangsbakkar eru að öllum líkindum fjölfarnasti áningarstaður hestamanna á norðurlandi en þar byrja allar ferðir Léttismanna hvort sem halda á til norðurs, austurs eða suðurs. Jörðin fór í eyði árið 1954 en Léttir kaupir jörðina árið 1962 og er hún um 70 hektarar. Kaupverðið var 200.000 krónur og voru oft á tíðum beittar umræður á félagsfundum áður en kaupin voru loks samþykkt. Seljandi jarðarinnar var Oddur C. Thorarensen apótekari á Akureyri og hestamaður og sló hann af kaupverðinu vegna velvildar til Léttis.
Flest öll mannvirki á jörðinni voru horfinn, en lengi vel stóð hluti af fjósinu sem og fjárhús, en í miklum flóðum í Eyjafjarðará rétt fyrir síðustu aldamót hrundu byggingar allar er eftir stóðu nema veggir fjóssins sem lengi vel var það ein sem eftir stóð af mannvirkjum. Nú hafa Léttismenn reist á Kaupangsbökkum sæluhús þar sem hestamenn sem eiga þar leið um geta drukkið sopað sinn, gætt sér á nesti og átt þar góða stund. Eiðfaxi hafði samband við framkvæmdarstjóra Léttis, Fúsa Helga og spurði hann út í Kaupangsbakka. „Bakkarnir voru lengi vel í hálfgerði tilvistarkreppu hjá okkur Léttismönnum og einungis nýttir óskipulega til beitar. Um síðustu aldamót fer svo að vakna til vitundar meðal okkar Léttismanna og annarra hestamanna hvílík verðmæti liggja hér í þessum stað og staðurinn fór að fá meira vægi í allri starfsemi Léttis. hrossarekstrar úr hesthúsahverfunum fóru að stefna hingað um helgar frá febrúarbyrjun hvers árs og stigmagnast svo fram á sumarið og haustið og hefur sá þáttur í hestamennsku okkar Léttismenna vaxið ár frá ári síðan. Þessir rekstrar okkar Léttismanna eru um margt mjög sérstakir og í raun stórkostleg gæði sem aldrei má skemma og eiga þeir sér ekki hliðstæðu á landinu og eru í dag mjög stór þáttur í þjálfun hrossa okkar Léttismanna og get ég sagt að þessi sérstaða okkar með þessa hrossarekstra er umtöluð um allt land og öfunduð af öðrum hestamönnum landsins og jörðin okkar Kaupangsbakkar þjónar hér stóru hlutverki í þeirri mynd.“
En hvenær hófst uppbygging á Kaupangsbökkum.
,,Árið 2015 hófst svo hér uppbygging og byrjað var á að reisa hér nýja rétt sem hér stendur auk þess sem reyndar nokkrum árum fyrr var aðkoman að jörðinni sjálfri færð. Veturinn 2016. nánar til tekið 17. janúar í 17 stiga frosti hófst svo endurbygging þessa hús og sperrur voru reistar og síðan þá hefur verið bætt um betur og húsið einangrað og panelklætt og er í dag ákaflega vinalegt og fallegt heim að koma. Þetta hús er aldrei læst og hingað inn geta allir komið og tyllt sér niður og hvílt lúin bein. Við Léttismenn erum stolt af Bakkahöllinni okkar en svo köllum við þetta fallega hús okkar og við stöndum í ævarandi þakkarskuld við Léttisfélaga fyrrum þá sem hér með bjartsýni og kannski smá brjálsemi lögðu í það verk árið 1962 að kaupa jörð og þær þakkir getum við endurgoldið aðeins með því að sýna staðnum sem og gegnum félögum þá virðingu sem ber og ég tel að okkur Léttismönnum hafi það tekist.“
Það er ekki hægt að heyra í Fúsa öðruvísi en að spyrja hann út í hvernig staðan hefur verið á hestamönnum í Eyjafirði í samkomubanni. “Hestamenn hér á svæðinu hafa eins og aðrir tekið þessu Covid19 ástandi með stóískri ró. Sumir voru samt hálf svekktir að loka skyldi þurfa reiðhöllinni, en sannarlega stöndum við hestamenn saman sem íþróttafólk og hvað sem svo segja má um hvort hægt sé að tryggja allar sóttvarnir í reiðhöllum þá kljúfum við okkur ekki frá íþróttahreyfingunni og hlýðum Víði. Allt mótahald er fyrir bý í vetur en þeim mun meiri útreiðar hafa verið stundaðar hjá okkur og Akureyrabær hefur staðir sig afskaplega vel að ryðja fyrir okkur reiðvegi í þessu fádæmalausa snjóavetri sem ofan á allt annað hefur geisað hér meira og minna síðan 10 desember 2019. Við komum vel undan vetri og erum hress, Mikið er um hrossarekstra og þótt að okkur sé þrengt nú með lokun reiðleiðarinnar fram á Kaupangsbakkana bíðum við svo spennt eftir að leiðin opnist og vorið komi. Við forsvarsmenn Léttis erum dag hvern að teikna upp nýjar sviðsmyndir um hvernig við ætlum að haga félagsstarfinu þegar samkomubanninu sleppir, en nú er þó ljóst að það verða áfram hömlur á allt mótahald að minnsta kosti út maí. Þangað til munum við Léttismenn halda áfram að þjálfa hross okkar upp á gamla mátann og mætum vorinu og sumrinu hress og kát og verði ekki landsmót þá verður sumarið nýtt til hestaferða lengri sem styttri. Við sendum svo öllum hestamönnum góðar kveðjur héðan úr Eyjafirðinum.“ Eiðfaxi þakkar Fúsa fyrir spjallið og óskar Léttismönnum til hamingju með glæsilega Bakkahöll og hlakkar til að koma norður og sjá þennan sögufræga stað með eigin augum.

Léttismenn sjást gæða sér á veitingum í Bakkahöllinni

Vaskir menn vinna að uppbyggingu hússins
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH