Stóðhestabók Eiðfaxa á lokametrunum
Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á Stóðhestabók Eiðfaxa 2020 og mun hún koma út í byrjun maímánaðar. Bókin verður að venju stútfull af stóðhestum, en í henni verður að finna upplýsingar um vel á þriðja hundruð stóðhesta á Íslandi. Við hjá Eiðfaxa viljum biðja þá stóðhestaeigendur sem enn eiga eftir að senda upplýsingar um sína hesta, að gera það sem allra fyrst með því að senda póst á [email protected].
Allir áskrifendur Eiðfaxa munu fá Stóðhestabókina ókeypis en þeir fengu senda ávísun til sín með Eiðfaxa Vetur og gildir sú ávísun sem greiðsla fyrir bókina á helstu sölustöðum hennar sem verða víðs vegar um landið.
Einnig verður hægt að panta bókina á vef Eiðfaxa og verður það auglýst nánar þegar nær dregur.
Ekki missa af biblíu hrossaræktandans 2020, Stóðhestabók Eiðfaxa!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH