Forkeppni B-flokks hafin
Forkeppni í B-flokki gæðinga hófst núna kl. 9 á Hvammsvelli í Víðidal og er landsmót þar með hafið.
Riðu á vaðið Glóðafeykir frá Halakoti og Einar Öder Magnússon, Fjarki frá Hólabaki undir stjórn Ríkharðs Flemming Jensen ásamt bleikblesóttu hryssunni Sóllilju frá Álfhólum og Söru Ástþórsdóttur. Af þeim hlutu Glóðafeykir og Einar Öder hæstu einkunn, 8,71, en þeir urðu eftirminnilega í þriðja sæti í þessum flokki á landsmóti í fyrra.
Margareterhof er selt
Tilnefningar til knapaverðlauna 2026