,,Vonandi verður stefna hrossaræktenda sett á landssýningu“
Félag hrossabænda gaf það út síðasta vetrardag að landssýning kynbótahrossa yrði haldinn á Rangárbökkum við Hellu laugardaginn 27.júní. Þar verða 10 efstu hross ársins í hverjum aldursflokki ýtarlega kynnt og verðlaunuð.
Þá verða afkvæmasýningar þeirra stóðhesta sem ná lágmörkum til 1.verðlauna fyrir afkvæmi sem og heiðursverðlaunahestar fyrir afkvæmi. Lagt verður mikið upp úr streymi frá viðburðinum sem hestaáhugafólk um heim allan getur nýtt sér og þá verða áhorfendur velkomnir byggt á þeim reglum um sóttvarnir vegna Covid-19 sem verða á þessum tíma.
Blaðamaður Eiðfaxa hitti Svein Steinarsson formann Félags Hrossabænda og spurði hann m.a. út í ástæður fyrir viðburðinum.
Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH