Stofnhryssan ótamin
Góð ræktunarhryssa er grundvallarþáttur í árangursríkri hrossarækt. Saga af uppruna Lambanesræktunarinnar sýnir að hryssur þurfa ekki endilega að vera hátt dæmdar heiðursverðlaunahryssur til að skila árangri. Ræktendur ársins 2014, þau Birna Tryggvadóttir Thorlacius og Agnar Þór Magnússon eru í viðtali í 12. tölublaði Eiðfaxa:
Þegar Agnar Þór var tvítugur fékk hann bleika hryssu til eignar. Hryssan sú hafði týnst í nokkur ár en fannst í stóði á næsta bæ. Hryssan var bandvön en ótamin. „Hún var heima hjá mér, að Lambanesi, í nokkur ár. Hún var aldrei tamin en sýndi okkur að hún væri nokkuð mögnuð meri. Hún fór um af mýkt með miklum fótaburði og hafði þetta einstaklega mikla skref. Við höfðum trú á henni og pabbi fékk fyrst um sinn nokkur hross undan henni,“ segir Agnar. Hryssan, sem nefnd var Sveifla, er stofnhryssa Lambanes-ræktunarinnar og hefur gefið fjórtán afkvæmi. Eðliskostir hennar virðast erfast vel í afkvæmunum, sem lýsir sér í skrefmiklum og ásæknum hrossum með ljúfa lund. Sveifla var felld í haust, 27 vetra gömul. „Hún skilur eftir sig drjúg spor,“ segir Agnar en afkomendur hennar eru nú hátt í hundrað talsins.
Blaðið berst áskrifendum í næstu viku en rafræna útgáfu þess má lesa hér. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH