Skráningarfrestur á gæðingamót Fáks framlengdur til kvölds
„Skráningafrestur á Gæðingamót Fáks er framlengdur fram á kvöldið
(sunnudagskvöld).
Gæðingamót fer fram á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 23. – 26. maí nk.
Auk gæðingakeppninar verður boðið upp á tölt og skeiðkappreiðar. A og B-flokkur
gæðinga er opinn fyrir alla til að keppa í sem og skeiðgreinar og tölt
meistaraflokkur. Töltið skipist í meistaraflokk (sem allir geta skráð í) og er
þá riðið prógramm einn í einu. Einnig er boðið upp tölt fyrir 17 ára og yngri
(skráð sem T3 unglingar) þar sem riðið er eftir þul og 3 inná í einu. Töltið í
meistaraflokknum er opið en ekki í 17 ára og yngri.
Skráning fer fram á sportfengur.com og lýkur í kvöld (sunnudagskvöld)
http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
• A flokkur gæðinga
• A flokkur gæðinga áhugamenn
• B flokkur gæðinga
• B flokkur gæðinga áhugamenn
• Barnaflokkur
• Unglingaflokkur
• Ungmennaflokkur
• 100 m skeið
• 150 m skeið
• 250 m skeið
• Tölt T1 meistaraflokkur
• Tölt T3 17 ára og yngri (skráð sem tölt unglingar)
Að venju ríða áhugamenn í A og B flokki með reyndari knöpum en áhugamenn ríða
svo sérstök úrslit sunnudaginn 26. maí og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í
áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst á [email protected] (knapi +
hestur + keppnisflokkur),“ segir í tilkynningu frá Fáki
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH