Nýr þáttur af Hestalífinu á vefsíðu Vísis

  • 5. maí 2020
  • Fréttir

Bjarni Elvar Pjetursson og Kristín Heimisdóttir voru viðmælendur í mannlífsþættinum Hestalífið sem birtist á Vísi í dag. Mynd: VÍSIR/HESTALÍFIÐ

Hestaþátturinn Hestalífið hóf göngu sína á vefsíðu Vísis í vetur og nú er nýr þáttur kominn í loftið. Í þáttunum kynnist Telma Tómasson þáttarstjórnandi fólki sem allt á það sameiginlegt að stunda hestamennsku og hafa áhugaverðar sögur að segja.

Í þessum nýjasta þætti kynnumst við þeim Kristínu Heimisdóttur og Bjarna Elvari Pjeturssyni sem reka hrossaræktarbú að Hjarðartúni.

Horfa má á þáttinn í heild sinni og fræðast um þessi skemmtilegu hjón með því að smella á vefslóðina hér fyrir neðan.

Hestalífið – ,,Fjárfestu í hestum frekar en hlutabréfum“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link