Þrjú hross með yfir 8,90 fyrir hæfileika
Héraðssýning kynbótahrossa í Skagafirði lýkur með yfirlitssýningu á Vindheimamelum laugardaginn 2. júní. Sýningin hefst kl. 9:00. Byrjað verður á yngstu hryssunum en endað á elstu stóðhestunum. Röðun hrossa í holl verður birt á horse.is á föstudagskvöld er dómum líkur. Þegar hafa 3 hross hlotið 8,90 eða hærra fyrir hæfileika, en það eru þau Óskasteinn frá Íbishóli (8,90), Ferna frá Hólum (8,91) og Trymbill frá Stóra-Ási (8,92). Sýnt verður beint frá yfirlitssýningunni á veraldarvefnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH