Svipmyndir úr V1 Meistara – Jakob Svavar og Hálfmáni í 1.sæti
A-úrslit í fjórgangi í meistaraflokki fóru fram hér í morgun á íþróttamóti Sleipnis.
Það var Jakob Svavar Sigurðsson sem stóð uppi sem sigurvegari á Hálfmána frá Steinsholti með einkunnina 7,73 í öðru sæti varð Ragnhildur Haraldsdóttir og Vákur með einkunnina 7,57, Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi varð í því þriðja með 7,20 í einkunn.
Sigurvegari b-úrslitanna frá því í gær Þórdís Erla Gunnarsdóttir varð í fjórða sæti á Feng frá Auðsholtshjáleigu með 7,10 og Þorgils Kári Sigurðsson varð í fimmta sæti á Fáki frá Kaldbak með 6,90 í einkunn.
Það er gaman að segja frá því að í þessum úrslitum voru feðgarnir Vákur frá Vatnsenda og sonur hans Fákur frá Kaldbak.
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Katla Sif og lið Fornusanda á toppnum í 1.deild Hringdu