Kolbrún Katla Íslandsmeistari í fjórgangi unglinga

  • 21. júní 2020
  • Fréttir

Fyrstu úrslitum dagsins á Íslandsmóti barna og unglinga er nú lokið en það voru knapar í unglingaflokki sem riðu á vaðið þegar keppt var í fjórgangi.

Kolbrún Katla Halldórsdóttir stóð uppi sem sigurvegari í fjórgangi á hryssu sinni Sigurrós frá Söðulsholti en þær Signý Sól Snorradóttir og Glódís Líf Gunnarsdóttir urðu í 2-3 sæti en þær komu alla leið úr B-úrslitum frá því í gær.

Framundan í dag eru úrslit í hinum ýmsu flokkum og fylgist Eiðfaxi með því sem fram fer.

Niðurstöður

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Kolbrún Katla Halldórsdóttir / Sigurrós frá Söðulsholti 6,80
2-3 Signý Sól Snorradóttir / Rektor frá Melabergi 6,77
2-3 Glódís Líf Gunnarsdóttir / Fífill frá Feti 6,77
4 Matthías Sigurðsson / Æsa frá Norður-Reykjum I 6,63
5-6 Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Garpur frá Skúfslæk 6,47
5-6 Benedikt Ólafsson / Bikar frá Ólafshaga 6,47
7 Védís Huld Sigurðardóttir / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 5,53

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link