Kynbótasýning á Sörlastöðum í Hafnarfirði: framlenging á skráningarfresti
Kynbótasýning fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 21. til 24. maí. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunniwww.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er nk. sunnudag 12. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected]. Endurgreiddar eru kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs.
Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 einnig má senda fyrirspurnir á netföngin [email protected] og [email protected].
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Stóðhestar fimm vetra og eldri þurfa að hafa fyrirliggjandi í WorldFeng blóðsýni og röntgenmynd af hæklum. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH