Ylfa Guðrún Reykjavíkurmeistari í fjórgangi (V2) ungmenna
Nú rétt í þessu lauk A-úrslitum í fjórgangi (V2) í ungmennaflokki í brakandi blíðu í Víðidalnum, það er um að gera fyrir alla sem heima sitja að gera sér ferð í Víðidalinn og fylgjast með spennandi keppni, réttast er þó að smyrja á sig vel af sólarvörn.
Ylfa Guðrún stóð uppi sem siguervegari í þessum flokki með 6,57 í einkunn en hún sat á Glanna frá Hofi og varð hún einnig Reykjavíkurmeistari.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Glanni frá Hofi | 6,57 |
| 2 | Katrín Ósk Kristjánsdóttir / Höttur frá Austurási | 6,53 |
| 3-4 | Ólöf Helga Hilmarsdóttir / Heiða frá Skúmsstöðum | 6,23 |
| 3-4 | Þuríður Ósk Ingimarsdóttir / Fálki frá Hólaborg | 6,23 |
| 5 | Kristófer Darri Sigurðsson / Aría frá Holtsmúla 1 | 5,97 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV