„Göldrun er með frábært geðslag“
Opnu Gæðingamóti á Flúðum er nú lokið en úrslit í öllum gæðingagreinum fóru fram í dag. Öll úrslit voru spennandi og mun niðurstaða þeirra allra liggja fyrir á vef Eiðfaxa seinna í dag eða fyrramálið.
Það má fullyrða að úrslit í barnaflokki hafi verið á Landsmóts staðli slíkur var hestakosturinn og knaparnir engu síðri. Það var Þórhildur Lotta Kjartansdóttir sem stóð efst á hryssunni Göldrun frá Hákoti.
Blaðamaður Eiðfaxa tók hana tali að úrslitum loknum en viðtalið má horfa á í spilaranum hér fyrir ofan.
A-úrslit í barnaflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Þórhildur Lotta Kjartansdóttir / Göldrun frá Hákoti | 8,71 |
| 2 | Elva Rún Jónsdóttir / Roði frá Margrétarhofi | 8,68 |
| 3 | Elísabet Vaka Guðmundsdóttir / Heiðrún frá Bakkakoti | 8,67 |
| 4 | Sigurbjörg Helgadóttir / Elva frá Auðsholtshjáleigu | 8,66 |
| 5 | Sölvi Þór Oddrúnarson / Leikur frá Mosfellsbæ | 8,54 |
| 6 | Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir / Komma frá Traðarlandi | 8,53 |
| 7 | Eik Elvarsdóttir / Tíbrá frá Strandarhjáleigu | 8,47 |
| 8 | Ágúst Einar Ragnarsson / Herdís frá Hafnarfirði | 8,35 |
Einvígi í vændum í Meistaradeild Líflands