Firmakeppni Smára
Firmakeppni Smára verður haldinn á Smára svæðinu við reiðhöllina á Flúðum næstkomandi Laugardag, 1. maí eins og venja er.
Dagskrá verður með óhefðbundnu sniði og hefst hún stundvíslega klukkan 13.00 Í stað 150m skeiðs verður keppt í 100m fljúgandi skeiði,
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Keppt er í pollaflokki 9 ára og yngri, barnaflokki 10 – 13 ára, unglingaflokki 14 -17, ungmennaflokki 18-21 , kvennaflokki, karlaflokki og heldrimannaflokki 50 ára og eldri . Miðað er við fæðingarár, einnig er keppt í 100 m fljúgandi skeiði.
Skráning verður á staðnum og hefst hún klukkan 11.30 og lýkur klukkan 12.50.
Hægt er að skrá á netfangið [email protected] og þurfa skráningar að berast fyrir miðnætti 30 apríl eða kvöldið áður. Í skráningu þarf að koma fram nafn knapa, hestur, litur, aldur og í hvaða flokki parið hyggst keppa.
Vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta koma og gera sér glaðan dag á einum stærsta viðburði í starfi hestamannafélagsins.
Reglur eru þær að í Firmakeppninni verður hestur að vera í eigu félagsmanns, en í skeiðinu verður knapi að vera í félaginu og hesturinn að vera í eigu félagsmanns.
Firmakeppnin verður riðin svona:
Riðið skal allt að þremur hringjum á hægri ferð og tveir hringir frjáls ferð. Keppni skal hafin uppá vinstri hönd og er það í höndum stjórnanda að láta keppendur snúa við og bæta við ferðum óski dómarar þess. Fet skal riðið milli atriða.
Skeiðið verður riðið svona:
Einn ríður í einu og tekin tími á honum, hvert par fær 2 umferðir, ef mikil þátttaka verður verða riðin úrslit af 10 bestu tímunum og geta menn valið að ríða ekki úrslit en halda tímanum sem hann var kominn með.
Skráningargjald verður í skeiðinu 1000 kr. á skráningu. Skráningargjaldið fyrir skeiðið verður sett í pott og fær sá sem er með besta tímann pottinn, vonandi verður þátttaka góð og þar af leiðandi potturinn stór.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH