Skráning hafin á Áhugamannamót
Áhugamannamót Íslands verður haldið á Rangárbökkum við Hellu 17-19.júlí næstkomandi. Stórglæsilegir vinningar í öllum greinum sem á sér enga hliðstæðu í mótahaldi hér á landi.
Næg beitarhólf og önnur aðstaða fyrir keppendur og gesti(nánari upplýsingar 8642118 Hallgrímur).
Hestamannafélögin Geysir, Sindri, Smári, Kópur standa að mótinu.
Skráning fer fram á heimasíðu Geysis hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi(eða sportfengur.com undir hnappnum skráningarkerfi) og lýkur þriðjudaginn 14.júlí kl 23:59.
Skráningargjald 4000kr og greiðist samhliða skráningu.
Áætluð dagskrá mótsins
Föstudagur 17.júlí
Fjórgangur
Gæðingskeið
Laugardagur 18.júlí
Fimmgangur
Tölt
100m skeið
Sameiginlegt grill og kvöldvaka
Sunnudagur
B-úrslit
A-úrslit
Eftirfarandi eru keppnisgreinar mótsins ásamt útskýringum úr lögum og reglum LH.
Fjórgangur V2
Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu. Hestarnir sýna fjórar gangtegundir eftir fyrirmælum þular eins og lýst er 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista.
Verkefni:1. Hægt tölt
2. Hægt til milliferðar brokk
3. meðalfet
4. Hægt til milliferðar stökk
5. Yfirferðartölt
Fjórgangur V5 (í skráningu 2.flokkur annað)
Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu. Hestarnir sýna fjórar gangtegundir eftir fyrirmælum þular eins og lýst er 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista
Verkefni: 1. Frjáls ferð á tölti
2. Hægt til milliferðar brokk
3. Meðalfet
4. Hægt til milliferðar stökk
Fimmgangur F2
Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu. Hestarnir sýna fimm gangtegundir eftir fyrirmælum þular eins og lýst er 5.4.2 Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista
Verkefni: 1. hægt til milliferðar tölt
2. hægt til milliferðar brokk
3. meðalfet
4. hægt til milliferðar stökk
5. flugskeið
Sýna má skeið þrisvar á einni langhlið. Meirihluti knapa velur þá langhlið sem skeið skal sýnt á. Geti þeir ekki komið sér saman um langhlið ákveður þulur á hvaða langhlið skeiðið skal sýnt. Einkunnir fyrir tölt og skeið vega tvöfalt.
Tölt T3
Tveir eða fleiri knapar eru á hringvellinum í einu í þessari keppnisgrein. Hestarnir sýna þrjú verkefni eftir fyrirmælum þular eins og lýst er í 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista
Verkefni: 1. Hægt tölt.
Hægt niður á fet og skipt um hönd
2. Hægt tölt, greinilegur hraðamunur á langhliðum, hægt tölt á skammhliðum..
3. yfirferðartölt.
Tölt T7
Í þessari grein eru 2 eða fleiri knapar á hringvellinum í einu. Atriði eru sýnd samkvæmt fyrirmælum þular eins og lýst er í 5.4.2. Þeir hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í rásröð.
Verkefni: Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd
Frjáls ferð á tölti
Tölt T4
Þrír knapar eru á vellinum í einu og ríða eftir fyrirmælum þular.
Verkefni: 1. Tölt á frjálsri ferð.
2. Hægt tölt, jafn og rólegur hraði. Ekki er gerð sama krafa um hraða og í T1
Hægt er niður á fet og skipt um hönd
3. Hægt tölt upp í milliferð, þar sem báðir taumar eru teknir í aðra hönd og greinilega sýnt að taumsamband við munn hestsins sé ekki til staðar.
Einkunnir fyrir þriðja lið verkefnisins eru tvöfaldaðar.
Gæðingaskeið
100m skeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH