Tölkeppni í Suðurlandsdeildinni
Þriðja keppni Suðurlandsdeildarinnar fór fram í gærkvöldi í Rangárhöllinni þar sem keppt var í tölti. Keppnin var hin glæsilegasta og voru mörg öflug hross sem mættu í braut. Virkilega ánægjulegt er að fylgjast með samstöðunni í liðunum og er óhætt að segja að keppninni fylgi virkilega góður andi. Húsfyllir í Rangárhöllinni í hverri keppni!
Lið Krappa fór með stórsigur í gærkvöld en fulltrúar þeirra lentu í 1. og 4. sæti í flokki atvinnumanna og 1. og 2. sæti í flokki áhugamanna. Lið Hemlu/Hrímnis/Strandarhöfuðs gaf samt sem áður ekkert eftir og voru þeirra fulltrúar í 2. og 3. sæti í flokki atvinnumanna og 6. og 9. sæti í flokki áhugamanna. Það er því enn mjótt á munum milli þessara liða.
Staðan í liðakeppninni er þannig að lið Krappa leiðir með 249 stig en þar fast á eftir kemur lið Hemlu/Hrímnis/Strandarhöfuðs með 233 stig og svo er lið Húsasmiðjunnar í þriðja sæti með 193 stig. Fræðilega séð getur lið VÍKINGanna ennþá unnið keppnina en þau eru í fjórða sæti sem stendur með 166 stig. Því er keppnin enn galopin og ómögulegt að spá til um hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari!
Næst verður keppt í fimmgang og fer sú keppni fram föstudaginn 17. mars.
Heildarstöðu Liðakeppninnar má sjá hér.
1. Krappi ehf 248,5
2. Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 232,5
3. Húsasmiðjan 192,5
4. VÍKINGarnir 165,5
5. Árbæjarhjáleiga/Herríðarhóll 156,5
6.-7. IceWear 143
6.-7. Heimahagi 143
8. Þverholt/Pula 137
9. Kvistir 109
10. Kálfholt 98,5
11. Hjarðartún 92,5
12. Hlökk 81,5
Niðurstöður Atvinnumannaflokkur
1 Lena Zielinski / Sprengihöll frá Lækjarbakka / Krappi ehf 7,44
2 Ásmundur Ernir Snorrason / Kórall frá Lækjarbotnum / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 7,33
3 Vignir Siggeirsson / Hátíð frá Hemlu II / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 7,00
4 Sigurður Sigurðarson / Dreyri frá Hjaltastöðum / Krappi ehf 6,89
5 Hekla Katharína Kristinsdóttir / Jarl frá Árbæjarhjáleigu II / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 6,72
6 John Sigurjónsson / Helgi frá Neðri-Hrepp / Heimahagi 6,72
7 Sigvaldi Lárus Guðmundsson / Lottó frá Kvistum / Kvistir 6,72
8 Davíð Jónsson / Flauta frá Grímsstöðum / Húsasmiðjan 6,33
9-10 Kristín Lárusdóttir / Garpur frá Skúfslæk / IceWear 6,43
9-10 Ingunn Birna Ingólfsdóttir / Þryma frá Ólafsvöllum / Kálfholt 6,43
11 Marjolijn Tiepen / Vígar frá Skarði / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 6,37
12 Jón Páll Sveinsson / Þytur frá Gegnishólaparti / Hjarðartún 6,30
13 Sæmundur Sæmundsson / Austri frá Úlfsstöðum / Kvistir 6,27
14 Alma Gulla Matthíasdóttir / Neisti frá Strandarhjáleigu / VÍKINGarnir 6,23
15 Guðmar Þór Pétursson / Brenna frá Blönduósi / Heimahagi 6,17
16 Ísleifur Jónasson / Gustur frá Kálfholti / Kálfholt 6,00
17 Ólöf Rún Guðmundsdóttir / Alda frá Litlu-Tungu 2 / Hlökk ehf 5,97
18 Ólafur Þórisson / Enja frá Miðkoti / Húsasmiðjan 5,80
19 Guðmundur Baldvinsson / Þór frá Bakkakoti / VÍKINGarnir 5,73
20 Auðunn Kristjánsson / Salka frá Hofsstöðum / Hjarðartún 5,70
21 Hjörtur Magnússon / Þjóð frá Þverá II / Þverholt-Pula 5,57
22 Jóhann Kristinn Ragnarsson / Járnsíða frá Hvammi / Þverholt-Pula 5,43
23 Hlynur Guðmundsson / Magni frá Hólum / IceWear 5,3324 Hallgrímur Birkisson / Logi frá Ármóti / Hlökk ehf 5,00
Niðurstöður áhugamannaflokkur
1 Benjamín Sandur Ingólfsson / Stígur frá Halldórsstöðum / Krappi ehf 6,61
2 Lea Schell / Elding frá V-Stokkseyrarseli / Krappi ehf 6,56
3 Sigurður Helgi Ólafsson / Von frá Bjarnanesi / Heimahagi 6,56
4 Janita Fromm / Náttfari frá Bakkakoti / VÍKINGarnir 6,44
5 Katrín Sigurðardóttir / Yldís frá Hafnarfirði / Húsasmiðjan 6,22
6 Katrín Diljá Vignisdóttir / Katla frá Hemlu II / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 5,89
7 Sarah Maagaard Nielsen / Kátur frá Þúfu í Landeyjum / Húsasmiðjan 6,00
8 Vilborg Smáradóttir / Grunnur frá Hólavatni / IceWear 5,97
9 Hrönn Ásmundsdóttir / Rektor frá Melabergi / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 5,90
10-12 Elín Hrönn Sigurðardóttir / Davíð frá Hofsstöðum / Þverholt-Pula 5,67
10-12 Gréta Rut Bjarnadóttir / Hnokkadís frá Laugavöllum / Hjarðartún 5,67
10-12 Guðrún Margrét Valsteinsdóttir / Léttir frá Lindarbæ / Kálfholt 5,67
13 Guðbrandur Magnússon / Straumur frá Valþjófsstað 2 / IceWear 5,60
14-15 Steingrímur Jónsson / Þór frá Stóra-Dal / Kálfholt 5,50
14-15 Annika Rut Arnarsdóttir / Gáta frá Herríðarhóli / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 5,50
16 Guðlaug Jóna Matthíasdóttir / Straumur frá Ferjukoti / VÍKINGarnir 5,43
17 Guðbjörn Tryggvason / Viktor frá Hófgerði / Kvistir 5,40
18 Jóhann Ólafsson / Dáti frá Hrappsstöðum / Heimahagi 5,30
19 Heiðdís Arna Ingvadóttir / Glúmur frá Vakurstöðum / Hlökk ehf 5,23
20 Ragnheiður Hallgrímsdóttir / Snillingur frá Sólheimum / Hlökk ehf 5,07
21 Bjarni Elvar Pétursson / Snægrímur frá Grímarsstöðum / Hjarðartún 5,03
22 Hlynur Pálsson / Gola frá Krossanesi / Kvistir 4,70
23 Renate Hannemann / Krúsilíus frá Herríðarhóli / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 4,60
24 Theódóra Þorvaldsdóttir / Nökkvi frá Pulu / Þverholt-Pula 4,57
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH