Sónað frá Þristi í dag
Hryssurnar sem voru hjá Þristi frá Feti á fyrra gangmáli í Akurey í V-Landeyjum verða sónarskoðaðar á morgun, þriðjudaginn 11. ágúst. Hafist verður handa kl. 13 og þarf að sækja allar hryssur samdægurs. Nánari upplýsingar veitir Hulda í síma 893 2028.
Þristur sinnir nú hryssum á Grímarsstöðum í Borgarfirði og þar er enn hægt að bæta við hryssum hjá þessum vinsæla heiðursverðlaunahesti. Nánari upplýsingar og pantanir á seinna gangmáli á Grímarsstöðum eru hjá Freyju í síma 694 2562 eða á netfangið [email protected]. Verð er kr. 90.000 án vsk. Girðingargjald og einn sónar innifalin.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH