TREC keppnin í kvöld

  • 18. febrúar 2016
  • Fréttir
Áhugamannadeildin.

Í kvöld verður hrikalega spennandi keppni í Samskipahöllinni í Spretti í nýrri keppnisgrein sem kölluð er Treck.

Keppendur Áhugamannadeildar Spretts hafa lagt mikið á sig við æfingar ásamt dómurum og starfsfólki deildarinnar.  Hér er verið að vinna frumkvöðlastarf í hestaíþróttinni og því verður mjög spennandi að fylgjast með hvernig til tekst.

Við hvetjum allt áhugafólk um hestamennsku til að mæta á pallana í Spretti til að hvetja keppendur og liðin.  Aðgangur er frír.

Húsið opnar kl. 18:00 og keppni hefst kl. 19:00.

Í kvöld verður boðið uppá glæsilegt hlaðborð með ljúffengu lasagna og mexikósúpu en auk þess er hægt að kaupa pizzur og allar fljótandi veitingar ásamt einhverju sætu.

Við minnum svo á fésbókarsíðuna og snapchat deildarinnar.  Endilega smellið like á viðburðin og bætið svo Áhugamannadeildinni sem vini á snappinu.  Nú er deildin líka komin á Instagram þannig við hvetjum áhorfendur til að taka myndir og setja á #ahugamannadeild #ahugamannadeildin #sprettur #gluggarogglerdeildin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link