Líflands-Fimmgangur

  • 14. febrúar 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum.

Nú styttist í næsta mót í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum en föstudagskvöldið 19.febrúar n.k. verður keppt í Líflands-Fimmgangi í Faxaborg, Borgarnesi.

Óhætt er að segja að deildin hafi farið vel af stað þegar keppt var í fjórgangi 5. febrúar síðast liðinn. Vel var mætt í Faxaborg og góð stemning myndaðist á pöllunum. Góður rómur var gerður af mótinu, hestkosturinn góður og umgjörðin öll til sóma. 

Að loknu fyrsta móti leiðir Berglind Ragnarsdóttir einstaklingskeppnina en skammt undan er Benedikt Þór Kristjánsson og Jakob Svavar Sigurðsson fast á hæla honum. Það er þó ljóst að keppnin er rétt að byrja og engin leið að spá fyrir um framhaldið enda 4 ólíkar greinar eftir.

Lið Snóks/Cintamani og Leiknis skáru sig nokkuð úr á fyrsta móti og leiðir Snókur/Cintamani með 44 stig en Leiknir er í öðru með 37.5 stig. Næsta lið er síðan Berg/Hrísdalur með 25.5 stig. Hin 3 liðin, Trefjar, Hjálmhestar og Eques eru síðan í ansi þéttum pakka. Trefjar og Hjálmhestar með 21.5 stig og Eques með 21 stig.

Mörg stig eru í pottinum á hverju kvöldi í liðakeppninni og getur hvert lið mest fengið 51 stig fyrir hverja grein svo þetta er allt galopið en hver mistök gætu reynst dýrkeypt þegar lítið ber á milli eins og staðan er núna í upphafi deildarinnar. 

Ráslisti fyrir fimmganginn verður birtur miðvikudagskvöldið 17. febrúar.

Húsið opnar síðan kl. 18.00 á föstudagskvöldinu og keppni hefst á slaginu 19.00. Miðaverð sem fyrr 1500 krónur en frítt fyrir 10 ára og yngri. Minnum svo á að aðgangsmiðinn gildir sem happdrættismiði en vinningur kvöldsins er folatollur undir Sprota frá Innri-Skeljabrekku.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link