Góður fundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Í gær var haldinn haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands í félagsheimili Hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi…
Fundurinn var þokkalega sóttur og tókst ágætlega að sögn Sveins Steinarssonar formanns samtakanna.
Guðlaugur antonsson fór yfir starfið á þessu undarlega ári og kom meðal annars fram að munur á fjölda dæmdra hrossa á þessu ári og síðasta var minni en menn hefðu getað haldið, en árið 2009 var fjöldi dæmdra hrossa nálægt 1700 en í ár nálægt1300. Útkoma var prýðileg í ár, ekkert lakari en verið hefur sagði Guðlaugur og rakti hann meðaltöl einkunna í öllum flokkum. Fram kom í máli hans að þröskuldar þeir sem notraðir hafa verið þetta tímabil í dómum tölts og stökks eru til endurskoðunar hjá fagráði og verður væntanlega eitthvað breytt.
Gunnar Arnarsson hélt erindi um stöðu og horfur í útflutningi og voru menn almennt ánægðir með fréttir sem hann flutti af þeim málum. Engar slæmar fréttir hafa borist af heilsufari hrossa ytra nýútfluttum og er engin ástæða til annars en bjartsýni hvað það varðar. 621 hross er nú þegar farið út eða nálægt 56% af útfluttum hrossum á sama tíma í fyrra. Töluvert af hrossum bíður útflutnings og er verið að selja hross og gerir Gunnar ráð fyrir því að heildarfjöldi á þessu ári verði 1000-1100 hross. Í ár hafa farið út 101 stóðhestar, um 300 hryssur og restin geldingar. Greindi Gunnar aðeins markaðinn fyrir fundargesti og sagði meðal annars að um 80% af markaðnum vill góða og vel tamda reiðhesta. Breydd er í litavali, gæðum og verðum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH