Húnavatnssýslur bætast við kortasjána
Mynd//lhhestar.is
„Til viðbótar við reiðleiðir í kortasjánni, sem voru 5586 km af reiðleiðum á suður- og vesturlandi, eru komnir 1278 km af reiðleiðum í Húnavatnssýslum. Um er að ræða flestar stofn- og héraðsleiðir í sýslunum. Alls eru því 6864 km af reiðleiðum skráðir í kortasjána. Næst verður farið í skráningu á reiðleiðum í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslum og er ráðgert að þær verði komnar inn fyrir áramót.
Allar ábendingar um hvað eina sem betur má fara við skráninguna eru vel þegnar og sendist á undirritaðan [email protected] eða á Sæmund Eiríksson [email protected]“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH