Uppskeruhátíð Skagfirðings og HSS

  • 14. nóvember 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Veitt voru verðlaun í hinum ýmsu flokkum
Sameiginleg uppskeruhátíð hestamannafélagsins Skagfirðings og HSS var haldin í Ljósheimum sl. föstudagskvöld. 
Veitt voru verðlaun í hinum ýmsu flokkum. 
Gísli Einarsson sló á létta strengi og Þorvaldur Kristjánsson fór yfir árangur kynbótahrossa. 
 
Veglegar veitingar voru í boði og áttu Skagfirskir hestamenn góða kvöldstund.

Ekki verður á neinn hallað þótt sérstaklega sé minnst á Þórarinn Eymundsson en hann sópaði að sér verðlaunum þetta kvöld. 
Hann var m.a. valinn knapi ársins í Skagafirði.  
Verðlaunahafar kvöldsins hjá Skagfirðing. 
Barnaflokkur – Júlía Kristín Pálsdóttir
Unglingaflokkur – Freydís Þóra Bergsdóttir
Ungmennaflokkur – Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Íþróttaknapi ársins – Þórarinn Eymundsson
Gæðingaknapi ársins – Þórarinn Eymundsson
Kynbótaknapi ársins – Þórarinn Eymundsson
Knapi ársins – Þórarinn Eymundsson 
Titiilinn Hrossaræktarbú ársins í Skagafirði hlutu Þúfur. 
Skagfirðingur óskar sínum félagsmönnum innilega til hamingju með góðan árangur á árinu.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link