Opna Norðurlandsmótið í hestaíþróttum

  • 19. maí 2012
  • Fréttir
Opna Norðurlandsmótið í hestaíþróttum

Opna Norðurlandsmótið í hestaíþróttum verður haldið á Hlíðarholtsvelli á Akureyri dagana 25. – 27. maí að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd Léttis:

 
„Keppnisgreinar:
Fullorðnir:      Tölt   Fjórgangur      Fimmgangur      Gæðingaskeið    Tölt T2
Ungmennaflokkur: Tölt   Fjórgangur      Fimmgangur
Unglingaflokkur: Tölt   Fjórgangur
Barnaflokkur:    Tölt   Fjórgangur
 
 
Mótanefnd Léttis áskilur sér rétt til að fella niður flokka ef ekki fæst næg þátttaka.
Skráningin fer fram á netfanginu   [email protected]. Skráning í mótið lýkur þriðjudagskvöldið 22. maí kl 23:59.
Skráningargjaldið er 4.000 kr.- á hverja skráningu. Greiðsla verður að hafa borist kl 12:00 á miðvikudeginum 23.maí
Greiða þarf skráningargjöldin inná reikning Léttis 0302-26-15839 kt. 430269-6749.
 
ÞAÐ SEM ÞARF AÐ KOMA FRAM Í SKRÁNINGU ER EFTIRFARANDI:
1. Nafn og Kennitala knapa
2. IS númer hests
3. hvaða grein er verið að skrá í
4. Fyrir hvaða hestamannafélag viðkomandi knapi keppir fyrir. .
 
EF EFTIRFARANDI ER EKKI RÉTT SKRÁÐ ER SKRÁNING ÓGILD!
 
Endanleg dagskrá mótsins og nákvæmari mun birtast síðar.
Mótanefnd Léttis óskar eftir starfsfólki sem getur liðsinnt henni með þetta gríðarstóra mót. Áhugasamir geta haft samband við Mótanefnd.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link