Við hesthúshorn Sleipnis
Guðni Ágústsson sendi Eiðfaxa þennan pistil:
Af mikilli tilviljun skrifaði ég síðasta pistil um það forboðna og hættulega…
Að við öll ekki bara hestamenn, áttum okkur á lífshættunni af því að smygla lifandi dýri til landsins,skítugum fötum eða „gómsætu,“ kjöti. Þetta allt getur valdið faraldri sem drepur menn og skepnur. Hingað gæti borist hundaæði með smyglhundi, hingað gæti borist kúariða með hráu kjöti. Svartidauði sem felldi þriðjung þjóðarinnar kom með skítugum fötum um Eyrarbakka forðum daga. Unga hestamanninn sem henti það slys,gáleysi á dögunum að koma með reiðtýgi og skítug föt,hann hefur nú hneigt höfuð sitt og beðist afsökunar. Ég virði auðmýkt hins unga manns hann hefur lært lexíu sína og upplifað með fjölskyldu sinni vítiskvalir og samviskubit,hann mun aldrei aftur brjóta þessa ströngu reglu. Í helgri bók segir „að það ríkji meiri fögnuður yfir einum syndara,sem gjörir iðrun en yfir níutíu réttlátum,er ekki hafa iðrunar þörf.“ Enginn mér vitanlega af „útrásardólgunum,“ svo nefndu sem rændu og rupluðu bankana innan frá, stálu sparifé með blekkingum hefur enn hneigt höfuð sitt og sagt hið auðmjúka orð,ég biðst fyrirgefningar. Ég ræddi það stundum sem Landbúnaðarráðherra að setja upp grænt innflutningshlið í Keflavík til að minna alla þá á hættuna sem eru að koma úr sveit erlendis og fara í sveit hér heima eða í laxveiðiá. Þar væri til staðar sótthreinsun og fræðsla um áhættuna gagnvart búfénu okkar. Mér er sagt að þeir í Nýja-Sjálandi séu með slíkt hlið og þar séu refsingar þyngri við brotum á smygluðu kjöti og skítugum skóm en að flytja inn eiturlyf. Ég minnist þess einnig frá mínum fyrstu dögum sem ráðherra þegar Jón Guðbrandsson dýralæknir hringdi í mig og sagði mér frá því að hestakerrur fullar af drullu og óhreinindum bærust á Selfoss og gumsinu væri skolað í sjálfa Ölfusá. Þá var Jóni dýra mikið niðri fyrir og brýndi sveitastrákinn úr Flóanum að taka á honum stóra sínum. Það var gert með hertum reglum og aukinni kröfu um eftirlit. Nú höfum við öll lært þessa reglu og enginn vill taka áhættu sem gæti ógnað lífi bæði manna og dýra með ómældum þjáningum og kosnaði. Hugsjónamennirnir í kringum reiðhöllina eru á fullu þessa dagana að undirbyggja og steypa undir áhorfendasvæðið,síðan ganga þeir í að klára skeiðvöllinn sjálfan og afmarka hann með „fótafjöl.“ Nú hefur fyrrum formaður félagsins Jón Gunnarsson í Miðholti gengið til liðs við hina verkglöðu byggingamenn og tekið að sér byggingastjórn á síðari áfanga reiðhallarinnar. Jón þekkir hamarinn og hamrar lögmálið í lærisveina sína. Sleipnismenn horfa því vonglaðir til þorrans þá munu járn glymja við jörðu,þá fagna hestamenn nýjum reiðleiðum um Flóann og reiðhöllin verður vonandi tekin í gagnið. Það er bjart framundan Sleipnismenn.
Guðni Ágústsson
netfang: gudni.ag( )simnet.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH