Fimm ár liðin frá fræknum sigri Kristínar Lár – Myndband
Í gær voru fimm ár liðin frá því að Kristín Lárusdóttir varð eftirminnilega heimsmeistari í tölti á Þokka frá Efstu-Grund. Það má segja að um öskubusku sigur hafi verið að ræða því hún hafði komið lengri leiðina í landsliðið eftir að Sigurður Sigurðarson dró sig úr út liðinu með Örnu frá Skipaskaga.
Hún stóð efst í úrslitum með töluverðum yfirburðum með einkunnina 8,44. en í öðru sæti varð Nils-Christian Larsen á Viktor frá Diisa með 7,94 og í því þriðja Katie Sundin Brumpton á Smára fran Askegarden með 7,89 í einkunn. Auk Kristínar voru tveir íslenskir landsliðsmenn í úrslitum þeir Sigurbjörn Bárðarson og Jóhann Rúnar Skúlason.
Það er óhætt að segja að Kristín hafi unnið hug og hjörtu allra sem fylgdust með henni á mótinu með fallegri reiðmennsku og ekki síst einlægri framkomu í viðtölum og á keppnisvellinum. Kristín birti myndbandið hér fyrir neðan á facebook síðu sinni í gær í tilefni af þessum tímamótum eða eins og hún orðaði það ,,Í tilefni 5 ára afmælis hjá okkur Þokka upp á dag þá deili ég smá videoi, Horfi alltaf á það ef ég verð þunglynd 😀 Endileg horfið til enda“
Myndbandið birtist á vef IsiblessÍsland á sínum tíma og við höfum fengið leyfi til að birta það hér á vef Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH