Matthías Eiðsson kenndur við Brún er látinn
Matthías Eiðsson á reiðhallarsýningu mynd: Þórir Tryggvason/Facebooksíða Léttis
Á heimasíðu hestamannafélagsins Léttis kemur það fram að hinn kunni hrossaræktandi og hestamaður, Matthías Eiðsson oftast kenndur við bæinn Brún á Akureyri sé látinn.
Í tilkynningunni segir; „Með Matthíasi er genginn einn fremsti hrossaræktandi landsins og mun lífsstarf hans og framlag til hrossaræktarinnar í landinu ekki verða afmáð og lifa lengi enn með okkur hestamönnum.
Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga heiðruðu Matthías einmitt fyrir þetta frábæra framlag hans til okkar hestamanna á síðasta ári.
Matthías lést umvafinn ástvinum sínum á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri laugardaginn 15 ágúst.
Hestamannafélagið Léttir þakkar Matthíasi samfylgdina og störfin í gegnum árin og sendir Hermínu Valgarðsdóttur eftirlifandi eiginkonu hans, börnum, barnarbörnum og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur.
Eiðfaxi vottar aðstandendum Matthíasar sínar dýpstu samúðarkveðjur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH