Ronja fra Hólaborg hæst dæmd – Hátíð hlaut 10,0 fyrir hægt tölt!
Ronja frá Hólaborg og Árni Björn á Síðsumarssýningu á Hellu
Siðssumarssýning á Gaddstaðaflötum lauk nú rétt áðan en en alls komu 94 hross til dóms þessa vikuna og þar af þrettán eingöngu til sköpulagsdóms.
Hæst dæmda hryssa sýningarinnar er Ronja frá Hólaborg sem er sex vetra gömul brún að lit. Ræktendur og eigendur eru Kristina Forsberg og Hólaborg ehf en sýnandi hennar var Árni Björn Pálsson. Fyrir sköpulag hlaut hún 8,25, fyrir hæfileika 8.60 og í aðaleinkunn 8,47.
Hún hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja. Faðir Ronju er Blysfari frá Fremra-Hálsi og móðir hennar er Rán frá Þorkelshóli 2.
Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar er Glundroði frá Garðshorni á Þelamörk sem er fimm vetra gamall fífilbleikur að lit undan Konsert frá Hofi og Ágústu frá Garðshorni á Þelamörk. Glundroði hlaut 8,49 fyrir sköpulag þar 9,0 fyrir háls,herðar og bók. Hann hlaut 8,13 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,26. Ásmundur Ernir Snorrason sýndi hestinn. Ræktendur hans eru Birna Tryggvadóttir Thorlacius og Agnar Þór Magnússon en eigandi er Julia Kaufmann.
Þá hlaut Hátíð frá Hemlu II hlaut einkunnina 10,0 fyrir hægt tölt en hún hlaut einnig 9,5 fyrir tölt og brokk sýnandi hennar var Árni Björn Pálsson. Hending frá Eyjarhólum sem Hlynur Guðmundsson sýndi hlaut 9,5 fyrir brokk og hægt tölt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH