Opið gæðingamót í Sörla næstu helgi
Mótanefnd Sörla vill minna alla á að skrá sig á Gæðingaveisluna sem fram fer dagana 26-29.ágúst. Skráningu hefur verið framlengt til 23.ágúst næstkomandi.
Nýtt í gæðingakeppni er gæðingakeppnisskeið sem boðið verður uppá á mótinu. Til að skrá sig í þenna flokk þarf að velja Gæðingaskeið PP1 meistaraflokkur í sportfeng enn flokkurinn er opinn öllum. Skráningagjaldið verður 4500 eins og í fullorðinsflokkana. Fleiri upplýsingar um framkvæmd, einkunnir á greininni og fleira mun verða birt á facebook event mótsins ( WR Gæðingaveisla Sörla 2020 (opið mót)) ásamt fleiri upplýsingum munum við verða birt þar og hvetjum við alla til að melda sig á mótið til að fylgjast með.
Ásamt gæðingakeppnisskeiðinu er gæðingatölt sem einnig er nýtt í gæðingakeppni og verður einnig hægt að skrá sig í. Dæmt er hægt tölt og fegurðatölt ásamt því að gefnar eru einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið. Til að skrá sig í þessa grein skal valið T1 í sportfeng.
Gæðingatölt Meistarar (T1 opin flokkur)
Gæðingatölt Áhugamenn (T1 2 flokkur)
Gæðingatölt 21 árs og yngri (T1 ungmennaflokkur)
Allar fyrirspurnir skulu berast á [email protected]
Mótanefnd Sörla
|
Kennitala þarf að vera útfyllt til þess að hægt sé að haka við val:
skraning.sportfengur.com
|
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH