Síðustu Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar árið 2020

  • 25. ágúst 2020
  • Fréttir

Síðustu skeiðleikar ársins fara fram miðvikudaginn 26.ágúst og hefjast þeir klukkan 19:00. Farið verður eftir reglum LH um sóttvarnir og verður því að þessu sinni fækkað í riðlum í 250 metra og 150 metra skeiði og verða nú tveir hestar í riðli. Þá verður enginn sjoppa á svæðinu og áhorfendur ekki leyfðir í brekkunni.

Dagskrá

19:00 250 metra skeið
19:30 150 metra skeið
20:30 100 metra skeið

Eins og áður í sumar að þá er hægt að tippa á úrslit skeiðleikanna í gegnum Lengjuna og þá eru leikarnir í beinni á AlendisTV

Hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur gefa alla verðlaunagripi á Skeiðleikum auk þess að veita stigahæsta knapa sumarsins 100.000 króna gjafaúttekt í verslun sinni. Auk þess hlýtur stigahæsti knapi farandbikainn Öderinn sem er gefinn af Gunnari og Kristbjörgu í Auðsholtshjáleigu.

Staða efstu knapa fyrir síðustu leikanna eru svona.

Konráð Valur 86

Sigursteinn 60

Jóhann Magnússon 52

Daníel Gunnarsson 40

Hans Þór 36

Sigurbjörn Bárðarson 32

Sæmundur Þ 30

Gústaf Ásgeir 28

Árni Björn 25

Davíð Jónsson 25

 

Ráslistar

 

Holl Knapi Hestur
150 metra skeið
1 Ævar Örn Guðjónsson Spori frá Ytra-Dalsgerði
1 Bjarni Bjarnason Hljómur frá Þóroddsstöðum
2 Þorgils Kári Sigurðsson Gjóska frá Kolsholti 3
2 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði
3 Sigurbjörn Bárðarson Hálfdán frá Oddhóli
3 Erling Ó. Sigurðsson Hnikar frá Ytra-Dalsgerði
4 Daníel Gunnarsson Eining frá Einhamri 2
4 Ólafur Örn Þórðarson Lækur frá Skák
5 Johanna Kirchmayr Skemill frá Dalvík
5 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I
6 Kjartan Ólafsson Brík frá Laugabóli
6 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1
7 Bjarni Bjarnason Þröm frá Þóroddsstöðum
7 Ævar Örn Guðjónsson Ögri frá Dísarstöðum 2
8 Sigurbjörn Bárðarson Hvanndal frá Oddhóli
250 metra skeið
1 Bjarni Bjarnason Glotti frá Þóroddsstöðum
1 Páll Bragi Hólmarsson Vörður frá Hafnarfirði
2 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II
2 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ
3 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
3 Árni Björn Pálsson Seiður frá Hlíðarbergi
4 Páll Bragi Hólmarsson Heiða frá Austurkoti
4 Bjarni Bjarnason Jarl frá Þóroddsstöðum
100 metra skeið
1 Árni Björn Pálsson Óliver frá Hólaborg
2 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ
3 Konráð Valur Sveinsson Tangó frá Litla-Garði
4 Kjartan Ólafsson Stoð frá Vatnsleysu
5 Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ
6 Sæmundur Þ. Sæmundsson Seyður frá Gýgjarhóli
7 Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni
8 Ragnar Snær Viðarsson Ísak frá Búðardal
9 Johanna Kirchmayr Orka frá Mið-Fossum
10 Erlendur Ari Óskarsson Dama frá Hekluflötum
11 Þorvaldur Logi Einarsson Gloría frá Grænumýri
12 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási
13 Ívar Örn Guðjónsson Hákon frá Sámsstöðum
14 Gunnlaugur Bjarnason Sunna frá Blesastöðum 2A
15 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
16 Hans Þór Hilmarsson Skíma frá Syðra-Langholti 4
17 Helga Una Björnsdóttir Loksins frá Akranesi
18 Jóhann Magnússon Fröken frá Bessastöðum
19 Þorgils Kári Sigurðsson Snædís frá Kolsholti 3

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link