Hauststarf Hestamannafélagsins Sörla er um það bil að hefjast
Hauststarf Hestamannafélagsins Sörla er um það bil að hefjast og mun það fara af stað af miklum krafti.
FÉLAGSHESTHÚS SÖRLA
Hið vinsæla félagshús Sörla sem hefur verið starfrækt síðastliðna tvo vetur er komið í gang. Þar er alltaf líf og fjör. Þangað koma m.a. krakkar sem eiga ekki foreldra eða aðra aðstandendur í hestamennsku og stíga sín fyrstu skref. Í vetur er Sörli í samstarfi við Íshesta og leigir glæsilega aðstöðu hjá þeim undir starfsemina og hefur aðgang að þeirra hestakosti. Það er mikið gleðiefni þegar við sjáum að krakkarnir, sem hafa verið í félagshúsinu s.l. ár, hafa sum nú eignast sína eigin hesta en koma aftur í félagshúsið og leigja pláss, til að geta verið áfram saman. Auður Ásbjörnsdóttir, umjónarmaður félagshússins er þeim til halds og trausts en hún hefur undanfarin ár sinnt þessu starfi af mikilli kostgæfni ásamt Guðbjörgu Önnu Guðbjörnsdóttur. Félagshúsið hefur notið mikilla vinsælda en í upphafi settu stjórn félagsins og framkvæmdastjóri upp stefnu og markmið varðandi rekstur hússins. Það er frábært að sjá að nokkrir unglingar sem byrjuðu í félagshúsinu eru nú orðin sjálfstæð í sinni hestamennsku í hesthúsum í hverfinu okkar.
YFIRÞJÁLFARI
Í vor réð stjórn félagsins Hinrik Þór Sigurðsson, reiðkennara sem yfirþjálfara hjá félaginu. Um er að ræða framald af tilraunaverkefni sem hófst s.l. vetur en í því felst að færa Hestamannafélagið Sörla nær því að starfa á sama hátt og önnur íþróttafélög. Ástæðan er margvísleg. Stefna núverandi stjórnar er sú að starfa í samræmi við margra ára gamalt slagorð félagisins ,, Sörli – Íþrótt – Lífstíll“ sem og að vera í takti við markmið stjórnar þ.e.a.s. að vera fagleg varðandi nýliðun og barna- og ungmennastarf.
REIÐMENNSKUÆFINGAR
Veturinn 2019-20 var byrjað með þá nýjung í Sörla að bjóða upp á það sem við höfum kallað „Reiðmennskuæfingar“. Reiðmennskuæfingarnar eru bóklegar og verklegar æfingar fyrir börn og ungmenni á aldrinum 8-21 árs sem verða 2x í viku. Reiðmennskuæfingar eru hugsaðar út frá því sjónarhorni að um sé að ræða reglubundnar íþróttaæfingar eins og í öðrum íþróttagreinum, með öllu sem því tilheyrir. Reiðmennskuæfingarnar hefjast hjá Sörla núna strax í september. Sömuleiðis er stefnt á að hefja reiðmennskuæfingar fyrir fullorðna nú á haustdögum en um er að ræða svipað fyrirkomulag og fyrir börn og ungmenni. Reiðkennarar á Sörlasvæðinu koma til með að skipta kennslunni á milli sín.
NÁMSKEIÐ og KNAPAMERKI
Fræðslunefnd félagsins heldur áfram að huga að fjölda annarra námskeiða fyrir hinn almenna reiðmann og núna strax í nóvember verður frumtamningarnámskeið með Robba Petersen. Fleiri námskeið eru í pípunum, sýnikennsla og fræðslukvöld eru fyrirhuguð sem auglýst verða síðar á vef félagsins. Einnig hefst kennsla í hinum sívinsælu knapamerkjum núna í haust.
Við hjá Sörla erum svo sannarlega spennt fyrir vetrinum og vonandi finna flestir félagsmenn okkar eitthvað við sitt hæfi. Hinir sem vilja bara njóta útreiða gera það svo áfram í okkar dásamlega umhverfi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH