Hæstu einkunnir ársins í tölti

Aðalheiður Anna og Kveikur eiga hæstu einkunn ársins í Tölti T1 opnum flokki mynd: Henk Peterse
Nú þegar keppnistímabilinu hér á landi er lokið er ráð að taka saman 10 hæstu einkunnir ársins í hverri keppnisgrein og aldursflokki og er þá miðað við einkunn í forkeppni. Það er hæsta einkunn hjá hverju pari sem gildir.
Núna tökum við fyrir hæstu einkunnir ársins í tölti T1 og T3.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Kveikur frá Stangarlæk 1 eiga hæstu einkunn ársins í tölti T1 opnum flokki þegar þau hlutu 8,53 á Reykjavíkurmeistaramótinu. Í sömu grein í ungmennaflokki er það Benjamín Sandur Ingólfsson sem á hæstu einkunn ársins á Muggu frá Leysingjastöðum II en hann hlaut 7,50 á Reykjavíkurmeistaramóti.
Ragnhildur Haraldsdóttir á hæstu einkunn ársins í T3 opnum flokki en hún hlaut 7,70 á Úlfi frá Mosfellsbæ á opnu gæðingamóti á Flúðum.
Viktoría Eik Elvarsdóttir á Gjöf frá Sjávarborg og Katla Sif Snorradóttirá Bálki frá Dýrfinnustöðum eiga hæstu einkunn ársins í ungmennaflokki T3 en þær hlutu 7,13.
Í unglingaflokki er það Kolbrún Katla Halldórsdótttir sem hlaut hæstu einkunn ársins á Sigurrós frá Söðulsholti en hún hlaut 7,33 í einkunn á opnu íþróttamóti Borgfirðings.
Í barnaflokki er það Ragnar Snær Viðarsson sem á hæstu einkunn ársins á Rauðku frá Ketilsstöðum en einkunn þeirra var 6,87 á Íslandsmótinu í sumar.
Tölt T1 – Opinn flokkur
# | Knapi | Hross | Einkunn | Mót |
1 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Kveikur frá Stangarlæk 1 | 8,53 | Reykjavíkurmeistaramót |
2 | Viðar Ingólfsson | Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II | 8,50 | Íþróttamót Sleipnis |
3 | Siguroddur Pétursson | Steggur frá Hrísdal | 8,30 | Reykjavíkurmeistaramót |
4 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bárður frá Melabergi | 8,23 | Reykjavíkurmeistaramót |
5 | Jakob Svavar Sigurðsson | Hálfmáni frá Steinsholti | 8,17 | Opið síðsumarsmót Spretts |
6 | Ragnhildur Haraldsdóttir | Vákur frá Vatnsenda | 8,17 | Reykjavíkurmeistaramót |
7 | Jakob Svavar Sigurðsson | Konsert frá Hofi | 7,93 | Reykjavíkurmeistaramót |
8 | Ævar Örn Guðjónsson | Vökull frá Efri-Brú | 7,83 | Íþróttamót Spretts 2020 |
9 | Janus Halldór Eiríksson | Blíða frá Laugarbökkum | 7,83 | Reykjavíkurmeistaramót |
10 | Elvar Þormarsson | Katla frá Fornusöndum | 7,73 | Íþróttamót Sleipnis |
Tölt T1 – Ungmennaflokkur
# | Knapi | Hross | Einkunn | Mót |
1 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Mugga frá Leysingjastöðum II | 7,50 | Reykjavíkurmeistaramót |
2 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir | Skálmöld frá Eystra-Fróðholti | 7,17 | Reykjavíkurmeistaramót |
3 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Stássa frá Íbishóli | 7,17 | Reykjavíkurmeistaramót |
4 | Viktoría Eik Elvarsdóttir | Gjöf frá Sjávarborg | 7,07 | Reykjavíkurmeistaramót |
5 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Rauður frá Syðri-Löngumýri | 6,93 | Reykjavíkurmeistaramót |
6 | Hákon Dan Ólafsson | Ída frá Varmalæk 1 | 6,87 | Reykjavíkurmeistaramót |
7 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Hrafney frá Flagbjarnarholti | 6,87 | Reykjavíkurmeistaramót |
8 | Bríet Guðmundsdóttir | Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum | 6,80 | Reykjavíkurmeistaramót |
9 | Egill Már Þórsson | Fluga frá Hrafnagili | 6,80 | Tölt B.E. húsbyggingar ehf- Léttir |
10 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Taktur frá Torfunesi | 6,80 | Reykjavíkurmeistaramót |
Tölt T3 – Opinn flokkur
# | Knapi | Hross | Einkunn | Mót |
1 | Ragnhildur Haraldsdóttir | Úlfur frá Mosfellsbæ | 7,70 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
2 | Sólon Morthens | Katalína frá Hafnarfirði | 7,63 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
3 | Elvar Þormarsson | Katla frá Fornusöndum | 7,50 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
4 | Hekla Katharína Kristinsdóttir | Lilja frá Kvistum | 7,40 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
5 | Sigurður Sigurðarson | Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 | 7,30 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
6 | Siguroddur Pétursson | Eyja frá Hrísdal | 7,30 | Reykjavíkurmeistaramót |
7 | Viðar Ingólfsson | Rauðka frá Ketilsstöðum | 7,27 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
8 | Anna Björk Ólafsdóttir | Flugar frá Morastöðum | 7,23 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
9 | Hinrik Bragason | Rósetta frá Akureyri | 7,23 | Reykjavíkurmeistaramót |
10 | Ólöf Rún Guðmundsdóttir | Skál frá Skör | 7,20 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
11 | Guðrún Sylvía Pétursdóttir | Gleði frá Steinnesi | 7,20 | Opið síðsumarsmót Spretts |
Tölt T3 – Ungmennaflokkur
# | Knapi | Hross | Einkunn | Mót |
1 | Viktoría Eik Elvarsdóttir | Gjöf frá Sjávarborg | 7,13 | Íþróttamót Geysis |
2 | Katla Sif Snorradóttir | Bálkur frá Dýrfinnustöðum | 7,13 | Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla |
3 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Stássa frá Íbishóli | 7,10 | Íþróttamót Geysis |
4 | Bríet Guðmundsdóttir | Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum | 7,00 | Opið síðsumarsmót Spretts |
5 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir | Stórstjarna frá Akureyri | 6,83 | Íþróttamót Geysis |
6 | Katla Sif Snorradóttir | Gustur frá Stykkishólmi | 6,80 | Opið íþróttamót Borgfirðings |
7 | Rúna Tómasdóttir | Sleipnir frá Árnanesi | 6,80 | Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla |
8 | Inga Dís Víkingsdóttir | Ósk frá Hafragili | 6,80 | Opið íþróttamót Borgfirðings |
9 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir | Skálmöld frá Eystra-Fróðholti | 6,73 | Íþróttamót Geysis |
10 | Aníta Rós Róbertsdóttir | Sólborg frá Sigurvöllum | 6,67 | Opið íþróttamót Borgfirðings |
Tölt T3 – Unglingaflokkur
# | Knapi | Hross | Einkunn | Mót |
1 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir | Sigurrós frá Söðulsholti | 7,33 | Opið íþróttamót Borgfirðings |
2 | Benedikt Ólafsson | Biskup frá Ólafshaga | 7,27 | Reykjavíkurmeistaramót |
3 | Guðný Dís Jónsdóttir | Roði frá Margrétarhofi | 7,23 | Reykjavíkurmeistaramót |
4 | Signý Sól Snorradóttir | Rafn frá Melabergi | 7,07 | Opið síðsumarsmót Spretts |
5 | Signý Sól Snorradóttir | Rektor frá Melabergi | 7,07 | Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla |
6 | Guðný Dís Jónsdóttir | Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ | 6,93 | Íþróttamót Spretts 2020 |
7 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Garpur frá Skúfslæk | 6,93 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
8 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Auðdís frá Traðarlandi | 6,70 | Íþróttamót Spretts 2020 |
9 | Elva Rún Jónsdóttir | Roði frá Margrétarhofi | 6,70 | Opna Gæðingamótið á Flúðum |
10 | Benedikt Ólafsson | Rökkvi frá Ólafshaga | 6,70 | Reykjavíkurmeistaramót |
11 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Ernir frá Tröð | 6,70 | Reykjavíkurmeistaramót |
Tölt T3 – Barnaflokkur
# | Knapi | Hross | Einkunn | Mót |
1 | Ragnar Snær Viðarsson | Rauðka frá Ketilsstöðum | 6,87 | Íslandsmót barna og unglinga |
2 | Elva Rún Jónsdóttir | Roði frá Margrétarhofi | 6,77 | Íslandsmót barna og unglinga |
3 | Elva Rún Jónsdóttir | Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ | 6,73 | Reykjavíkurmeistaramót |
4 | Kristín Karlsdóttir | Ómur frá Brimilsvöllum | 6,70 | Íslandsmót barna og unglinga |
5 | Sigurbjörg Helgadóttir | Elva frá Auðsholtshjáleigu | 6,67 | Reykjavíkurmeistaramót |
6 | Elísabet Vaka Guðmundsdóttir | Heiðrún frá Bakkakoti | 6,53 | Íslandsmót barna og unglinga |
7 | Inga Fanney Hauksdóttir | Mirra frá Laugarbökkum | 6,37 | Íþróttamót Spretts 2020 |
8 | Lilja Rún Sigurjónsdóttir | Þráður frá Egilsá | 6,23 | Reykjavíkurmeistaramót |
9 | Helena Rán Gunnarsdóttir | Simbi frá Ketilsstöðum | 6,13 | Reykjavíkurmeistaramót |
10 | Þórhildur Lotta Kjartansdóttir | Göldrun frá Hákoti | 6,13 | Íslandsmót barna og unglinga |
11 | Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson | Polka frá Tvennu | 6,13 | Reykjavíkurmeistaramót |
12 | Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson | IGjafar frá Hæl | 6,13 | Íþróttamót Geysis |
Birt með fyrirvara um að öll mót ársins hafi borist.