Leitað eftir hrossum í tamningu og þjálfun
„Sem fyrr leitar Hólaskóli til hrossaeigenda um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar hjá nemum á 2. ári við hestafræðideild, undir handleiðslu reiðkennara skólans. Nú er leitað eftir hrossum í vinnuna á vorönn 2013.
Kallað er eftir hrossum í þessi verkefni:
Frumtamning
Grunnvinna, sem miðar fyrst og fremst að því að gera trippin reiðfær. Samhliða er lögð áhersla á teymingar og aðra vinnu við hendi.
Forkröfur: Trippin komi fortamin (a.m.k. bandvön), heyjuð og í góðu fóðurástandi. Þau þurfa að hafa náð góðum þroska. Æskilegt er að þau séu undan 1. verðlauna stóðhestum.
Frumtamið verður á tímabilinu 7. janúar til 23. febrúar.
Trippin komi á staðinn 3. eða 4. janúar.
Grunnþjálfun
Megináhersla er lögð á að gera hrossin góð í beisli, þjálfa samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, sem og gangsetningu. Enn frekari uppbygging þreks, jafvægis og vilja.
Forkröfur: Grunnþjálfunin er framhald frumtamningar. Trippin skulu vera vel reiðfær utan dyra og teymast vel með manni. Þau þurfa að vera nýlega járnuð, heyjuð og í góðu fóðurástandi við komuna.
Grunnþjálfun er í boði á tímabilinu 7. janúar til 23. febrúar.
Trippin komi á staðinn 3. eða 4. janúar.
Þjálfun
Fyrir (meira) tamin hross á 5. – 12. vetri af öllu tagi en þó eru ekki tekin gölluð hross eða hættuleg (s.s. hrekkir, rokur, slægð, húslestir). Þessi áfangi er alhliða þjálfun reiðhests með áherslu á bætta svörun ábendinga, jafnvægi, hreyfingar og rými á öllum gangtegundum.
Forkröfur: Hrossin þurfa að vera heilbrigð og laus við galla, svo sem slægð, hrekki, húslesti eða áberandi viðkvæmni eða kaldlyndi. Þau þufa að vera í lágmarksþjálfun við komuna, nýlega járnuð, heyjuð og í góðu fóðurástandi.
Þjálfun er í boði tímabilið 4. febrúar til 23. mars.
Hrossin komi á staðinn 29. eða 30. janúar.
Kostnaður – fyrir allt viðkomandi tímabil (ber ekki virðisaukaskatt), er kr. 60.000.
Innifalið: Allt uppihald, auk járninga (ef við á) og ormalyfsgjafar en ekki annar kostnaður sem kann að falla til, t.d. dýralæknakostnaður. Skólinn tryggir ekki hrossin sem eru ávallt á ábyrgð eigenda.
Þeim sem hafa hug á að koma að hrossum í eitthvert þessara námskeiða, er bent á að leggja inn pöntun sem allra fyrst.
Pantanir skulu skráðar í þetta eyðublað hér.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH