Kveikur fer út í lok október

  • 26. september 2020
  • Fréttir
Umfjöllun um Kveik frá Stangarlæk 1 í kvöldfréttum RÚV

Eins og allt hestaáhugafólk væntanlega veit, skipti stóðhesturinn Kveikur frá Stangarlæk 1 um eigendur nú á haustdögum. Salan á Kveik vakti að vonum mikla athygli, einnig út fyrir raðir hestamanna, eins og sjá má af skemmtilegri umfjöllun um söluna sem birt var í kvöldfréttatíma RÚV fyrr í kvöld þar sem meðal annars er rætt við ræktendur Kveiks, þau Birgi Leó Ólafsson og Rögnu Björnsdóttur. Kom þar meðal annars fram að Kveikur mun yfirgefa fósturjörðina í lok október og halda á vit nýrra ævintýra.

Fyrir þá sem misstu af umfjölluninni má nálgast hana með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar