Spennandi námskeið í Sörla

  • 20. nóvember 2015
  • Fréttir
Helgarnámskeið með Eyjólfi Ísólfssyni

„Helgarnámskeið 14.-16. febrúar 2016 með Eyjólfi Ísólfssyni sem var  í mörg ár yfirreiðkennari á Hólum.  Hann er frábær kennari með mikla reynslu í kennslu og er einn af örfáum reiðkennurum landsins með réttindi A.

Hér er verulega spennandi tækifæri fyrir knapa að komast í tíma hjá þessum frábæra kennara.  Eyjólfur er nú búsettur erlendis og eru því ekki mörg tækifæri að komast í tíma til hans. Kennsluhelgin verður 14.-16.febrúar n.k.  Þetta eru einkatímar þar sem hver knapi fær aðstoð með eigin hest.  Kennsla hefst  seinnipart föstudags en verður framhaldið  laugardag og sunnudag. Í lok námskeiðsins fær hver knapi leiðbeiningar um framhald þjálfunar fyrir sig og sinn hest.

Námskeiðið er opið öllum.  Rétt er þó að vekja athygli á að  einungis átta  knapar komast í verklegu tímana. Hægt verður að kaupa sig inn á áhorfendapalla og fylgjast með kennslunni (einungis 15 manns)“

Sörlafélagar kr.59.900.-
Utanfélagsmenn kr. 64.900.-

Skráning á [email protected]

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link