Erlingur Erlingsson tilnefndur til kynbótaknapa ársins í Svíþjóð

  • 5. október 2020
  • Fréttir

Erlingur og Frakkur frá Langholti fyrir nokkru árum hér heima á fróni

Nú þegar kynbótasýningum á íslenskum hestum er lokið fer að færast spenna í það hvaða knapar eru tilnefndir í ár til kynbótaknapa ársins. Í raun er líka spennandi að sjá hvort þau verðlaun verði veitt hér á landi í ár ef ekki verður hægt að blása til uppskeruhátíðar. Það verður þó að teljast líklegt að venju samkvæmt verðir knapar tilnefndir þrátt fyrir að ekki verði uppskeruhátíð í sinni eiginlegu mynd.

Svíar tilnefndu í morgun fyrsta knapann sem tilnefndur er í flokknum kynbótaknapi ársins. Það er íslendingurinn Erlingur Erlingsson sem tilnefndur er fyrstur en alls munu fimm knapar fá útnefningu og birtast þeir í stafrófsröð á heimasíðu Sif Avel.

Erlingur sýndi alls 32 hross í 37 sýningum en meðalaldur þeirra hrossa er 6,7 ár. Meðaltal sköpulags var 8,12, meðaltal hæfileika 7,85 og meðaltal aðaleinkunnar 7,95.

Hér fyrir neðan er myndband af því helsta frá Erlingi í ár birt með góðfúslegu leyfi Sif Avel

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar