Margir hestar fóru 100 metrana undir 8,00 sekúndum
Konráð og Kjarkur eiga besta tíma ársins í 100 metra skeiði
Keppni í skeiðgreinum reis hátt á þessu ári og fljótum hrossum fjölgar stöðugt, eins og sást á þeim mótum sem haldin voru í sumar að efstu sætin dreifðust jafn á milli knapa og hesta og keppnin var spennandi.
Í 100 metra skeiði voru það 48 hross sem hlupu vegalengdina á undir 8,00 sekúndum í ár sem er bæting miðað við árið í fyrra þar sem 38 hross náðu þessum áfanga.
Konráð Valur Sveinsson náði besta tíma ársins á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II á Opnu síðsumarsmóti Spretts þegar hann fór vegalengdina á 7,32 sekúndum. Með annan besta tíma ársins er Krókus frá Dalbæ og Sigursteinn Sumarliðason sem þeir settu á lokamóti Meistaradeildarinnar á Brávöllum á Selfossi við sama tilefni náði Jóhann Magnússon þriðja besta tímanum á Fröken frá Bessastöðum en sá tími var 7,44.
Hér fyrir neðan má sjá 30 fljótustu hross ársins en hvert par telur eingöngu einu sinni og þá er það besti tíminn sem gildir.
| # | Knapi | Hross | Tími | Mót |
| 1 | Konráð Valur Sveinsson | IS2006186758 Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 7,32 | IS2020SPR206 – Opið síðsumarsmót Spretts |
| 2 | Sigursteinn Sumarliðason | IS2008187654 Krókus frá Dalbæ | 7,37 | IS2020MEI108 – Lokamót Meistaradeild í hestaíþróttum |
| 3 | Jóhann Magnússon | IS2011255571 Fröken frá Bessastöðum | 7,44 | IS2020MEI108 – Lokamót Meistaradeild í hestaíþróttum |
| 4 | Ingibergur Árnason | IS2009286105 Sólveig frá Kirkjubæ | 7,49 | IS2020SOR199 – Gæðingaveisla Sörla (WR) |
| 5 | Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson | IS2007157339 Seyður frá Gýgjarhóli | 7,51 | IS2020SMA163 – Opna Gæðingamótið á Flúðum |
| 6 | Árni Björn Pálsson | IS2011182375 Óliver frá Hólaborg | 7,51 | IS2020GEY121 – Meistaramót Íslands |
| 7 | Viðar Ingólfsson | IS2010186505 Ópall frá Miðási | 7,53 | IS2020GEY121 – Meistaramót Íslands |
| 8 | Sigurbjörn Bárðarson | IS2008157895 Vökull frá Tunguhálsi II | 7,55 | IS2020FAK140 – Reykjavíkurmeistaramót |
| 9 | Konráð Valur Sveinsson | IS2011201056 Dama frá Hekluflötum | 7,56 | IS2020FAK140 – Reykjavíkurmeistaramót |
| 10 | Jakob Svavar Sigurðsson | IS2011187880 Jarl frá Kílhrauni | 7,57 | IS2020FAK140 – Reykjavíkurmeistaramót |
| 11 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | IS2010266201 Rangá frá Torfunesi | 7,61 | IS2020SPR266 – Metamót 2020 |
| 12 | Daníel Gunnarsson | IS2010235062 Eining frá Einhamri 2 | 7,63 | IS2020FAK140 – Reykjavíkurmeistaramót |
| 13 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | IS2001184971 Andri frá Lynghaga | 7,65 | IS2020FAK140 – Reykjavíkurmeistaramót |
| 14 | Guðmundur Björgvinsson | IS2013235831 Stolt frá Laugavöllum | 7,67 | IS2020GEY170 – Suðurlandsdeild tölt og skeið 1 |
| 15 | Glódís Rún Sigurðardóttir | IS2006288809 Blikka frá Þóroddsstöðum | 7,70 | IS2020FAK140 – Reykjavíkurmeistaramót |
| 16 | Freyja Amble Gísladóttir | IS2008265170 Dalvík frá Dalvík | 7,70 | IS2020SKA176 – Punktamót 1 |
| 17 | Þórarinn Eymundsson | IS2007258558 Gullbrá frá Lóni | 7,71 | IS2020MEI108 – Lokamót Meistaradeild í hestaíþróttum |
| 18 | Hans Þór Hilmarsson | IS2008257650 Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 7,71 | IS2020SMA163 – Opna Gæðingamótið á Flúðum |
| 19 | Lilja Maria Suska | IS2005156079 Viðar frá Hvammi 2 | 7,73 | IS2020TYT174 – íþróttamót þyts 2020 |
| 20 | Svavar Örn Hreiðarsson | IS2007181415 Sproti frá Sauðholti 2 | 7,73 | IS2020TJA172 – Stórmót Þjálfa 2020 |
| 21 | Ásmundur Ernir Snorrason | IS2008164492 Fáfnir frá Efri-Rauðalæk | 7,73 | IS2020SPR110 – Íþróttamót Spretts 2020 |
| 22 | Svavar Örn Hreiðarsson | IS2010286075 Hnoppa frá Árbakka | 7,76 | IS2020SKA188 – Kvöldmót Skagfirðings 3 |
| 23 | Finnur Jóhannesson | IS2006257301 Tinna Svört frá Glæsibæ | 7,76 | IS2020SMA163 – Opna Gæðingamótið á Flúðum |
| 24 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | IS2009286105 Sólveig frá Kirkjubæ | 7,76 | IS2020SOR132 – Gæðingamót Sörla |
| 25 | Stella Sólveig Pálmarsdóttir | IS2008164492 Fáfnir frá Efri-Rauðalæk | 7,78 | IS2020GEY170 – Suðurlandsdeild tölt og skeið 1 |
| 26 | Guðmar Freyr Magnússon | IS2009125475 Brimar frá Varmadal | 7,79 | IS2020TJA172 – Stórmót Þjálfa 2020 |
| 27 | Árni Björn Pálsson | IS2010177100 Seiður frá Hlíðarbergi | 7,80 | IS2020GEY121 – Meistaramót Íslands |
| 28 | Eva Dögg Pálsdóttir | IS2011187880 Jarl frá Kílhrauni | 7,81 | IS2020GEY170 – Suðurlandsdeild tölt og skeið 1 |
| 29 | Konráð Valur Sveinsson | IS2014165652 Tangó frá Litla-Garði | 7,81 | IS2020SKF262 – Skeiðleikar 5 |
| 30 | Teitur Árnason | IS2011158830 Bandvöttur frá Miklabæ | 7,83 | IS2020GEY121 – Meistaramót Íslands |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH