Blær frá Miðsitju skiptir um eigenda
Line með Blæ mynd: Aðsend
Hinn þekkti stóðhestur Blær frá Miðsitju skiptir um eigendur en það er Line K. Jeppesen sem er nú kominn með hann í sína umsjá en hún er búsett í Danmörku.
Blær er fimmtán vetra gamall undan Arði frá Brautarholti og Björk frá Hólum. Í sínum hæsta kynbótadómi hlaut hann 8,29 fyrir sköpulag, 8,87 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,64. Þar bar hæst 9,5 fyrir brokk,skeið og vilja og geðslag.
Samkvæmt heimildum Eiðfaxa að þá á að nýta hann til ræktunar og sem lúxus reiðhest. Line er einnig eigandi Ísaks frá Kirkjubæ og þá verður hún með Álfastein frá Selfossi til notkunar næsta sumar.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV