Lést af slysförum
Þórður Heiðar Jónsson lést af slysförum í Þýskalandi í gær, 12. ágúst, 55 ára að aldri. Hann var fluttur á sjúkrahús í Köln eftir að hafa dottið af hestbaki 7. ágúst. Hann komst aldrei til meðvitundar.
Þórður var bróðir hins þekkta hestamanns Alberts Jónssonar, en Þórður hefur lengi búið í Danmörku og Þýskalandi en komið reglulega til Íslands. Hann starfaði síðast á Íslandi þegar hann ásamt Albert löggðu stund á tamningar á Strandarhöfði fyrir um fimmtán árum síðan.
Þórður (Doddi) var fæddur á Akranesi 3. júlí 1959. Foreldrar hans eru Guðrún Karítas Albertsdóttir, fædd árið 1927, og Jón Sigurðsson Jónsson, fæddur árið 1925, dáinn árið 2003.
Börn Þórðar eru Petrina Menzel, fædd Kasperczyk, búsett í Þýskalandi og Alexander Jon, búsettur í Danmörku. Systkini Þórðar eru Jón Ægir, sem er látinn, Albert, Petrína, Sigurður og Karítas.
Þórður lærði málaraiðn en helgaði líf sitt hestamennsku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH