Slysahætta vegna útivistarfólks á reiðvegum

  • 28. október 2020
  • Fréttir

Á vefsíðu Fréttablaðsins er frétt þess efnis að ágangur útivistarmanna á reiðvegum valdi slysahættu. Af því tilefni er tekið viðtal við Sigríði Kristínu Hafþórsdóttur framkvæmdarstjóra Hestamannafélagsins Sörla.

,,það er mikið af ungum og óvönum krökkum á æfingasvæðinu, við verðum að geta tryggt að þau séu örugg,“ Er meðal þess sem hún segir í þessu viðtali. Þá kemur einnig fram að formenn Hestamannafélaganna á Höfuðborgarsvæðinu hafi fundað í gærmorgun. Sigríður segir að ljóst sé að betri merkingar þurfi til að gera útivistarfólki ljóst að um reiðvegi er að ræða.

„Við erum að mæta fólki á hlaupum í litríkum hlaupagöllum og fólki með blikkandi ljós á reiðhjólum. Hestarnir eru flóttadýr og ef þeir fælast hlaupa þeir sem hraðast í burtu. Hérna hjá okkur er hraun allt um kring og ekkert grín ef hestarnir taka af stað út af örmjóum stígum,“ segir hún. „Fólk hefur margsinnis fallið af baki vegna þessa. Sem betur fer hefur ekkert mjög alvarlegt slys orðið, en það er aðeins tímaspursmál ef þetta heldur svona áfram.“

Nú þegar líkamsræktarstöðvar eru lokaðar er mikið um það að fólk hreyfi sig utandyra og því ljóst að töluverð fjölgun hefur orðið á meðal þeirra sem fara út að ganga, skokka eða hjóla.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link