Þrír nýir knapar í landsliðshópi fullorðinna
Nú rétt í þessu voru landsliðshópar fyrir komandi tímabil kynntir á vefsíðu LH.
Þrír nýliðar eru í landsliðshópi Sigurbjörns frá því í janúar á þessu ári en það eru þau Daníel Gunnarsson, Jóhanna Margrét Snorradóttir og Snorri Dal.
Fjórir detta út úr hópnum frá því síðastliðinn vetur en það eru þau Ásmundur Ernir Snorrason, Haukur Tryggvason, Hulda Gústafsdóttir og Þórarinn Ragnarsson.
Nánar er fjallað um landsliðið á vef LH en smella má hér til að skoða þá frétt.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV