Liðin í Meistaradeildinni árið 2021

  • 31. október 2020
  • Fréttir

Sigurlið Hjarðartúns tímabilið 2020 mynd: Louisa Hackl

Meistaradeildin í hestaíþróttum hefst í byrjun árs 2021. Þar munu átta lið og 40 knapar etja kappi saman en eftir veturinn mun einungis eitt lið og einn knapi standa uppi sem sigurvegari. Blaðamaður Eiðfaxa fór á stúfana og hér á eftir er kynning á liðunum sem keppa 2021.

Dagskrá Meistaradeildarinnar árið 2021 er eftirfarandi.

28. Janúar – Fjórgangur – TM Höllin, Fákur
11. Febrúar – Slaktaumatölt – Ingólfshvoll, Ölfus
25. Febrúar – Fimmgangur – Samskipahöllin, Sprettur
11. Mars – Gæðingafimi – Ingólfshvoll, Ölfus
20. Mars – Gæðingaskeið og 150m skeið – Selfoss
10. Apríl – Tölt og 100 m skeið – lokahátíð – Ingólfshvoll, Ölfus

Auðsholtshjáleiga / Horse Export / Strandarhöfuð

Lið Auðsholtshjáleigu eru eitt elsta liðið í deildinni en þetta verður ellefta árið sem það tekur þátt í deildinni. Hrossaræktarbúið Strandarhöfuð bættist við í fyrra sem liðseigandi og halda áfram á næsta tímabili. Liðinu hefur nú borist liðsauki frá Guðmundi Björgvinssyni sem var liðsstjóri Eques/Kingsland á síðasta tímabili. Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Þórdís Erla Gunnarsdóttir (L)
Ásmundur Ernir Snorrason
Guðmundur Friðrik Björgvinsson
Jóhann Magnússon
Sylvía Sigurbjörnsdóttir

Ganghestar/Margrétarhof

Liðið var í fall baráttunni á síðasta tímabili og endaði í síðasta sæti í liðakeppninni. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Reynir Örn Pálmason koma aftur inn í liðið fyrir næsta tímabili en þau tóku sér eitt ár frí frá deildinni. Mikill liðsauki í þeim en Aðalheiður endaði í öðru sæti í einstaklingskeppninni árið þar áður (2019). Það verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur á næsta tímabili en bæði Aðalheiður og Ragnhildur áttu góðu gengi að fagna á keppnisvellinum í ár. Þá er Reynir Örn hokinn af reynslu og þrælvanur keppnisknapi.
Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Sigurður Vignir Matthíasson (L)
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Glódís Rún Sigurðardóttir
Ragnhildur Haraldsdóttir
Reynir Örn Pálmason

 

Gangmyllan

Gangmyllan teflir fram óbreyttu liði frá því í fyrra og verður þetta þriðja árið sem þau keppa með sama lið. Sterkustu greinar Gangmyllunnar hafa verið fjórgangur, tölt, slaktaumatölt og gæðingafimi en þau hafa verið stigahæsta liðið í gæðingafimi síðustu fjögur ár. Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Bergur Jónsson (L)
Olil Amble
Elin Holst
Ævar Örn Guðjónsson
Sigurður Sigurðarson

 

Hestvit/Árbakki

Hestvit/Árbakki teflir fram óbreyttu liði en þau enduðu í þriðja sæti í liðakeppninni 2020. Þau tóku þá Jóhann inn sem kom sterkur inn í skeiðgreinunum og áttu þau góðu gengi að fagna í gæðingaskeiðinu þar sem þau hlutu liðaplattann. Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Hinrik Bragason (L)
Gústaf Ásgeir Hinriksson
Hulda Gústafsdóttir
Jóhanna Margrét Snorradóttir
Jóhann Kristinn Ragnarsson

 

Hjarðartún

Lið Hjarðartúns sigraði liðakeppnina 2020 en var það jafnframt í fyrsta sinn sem liðið tók þátt í deildinni. Liðið er óbreytt frá því fyrra með sigurvegara einstaklingskeppninnar innanborðs, Jakob Svavar Sigurðsson. Liðið stóð efst í liðakeppninni eftir fyrstu grein og hélt forustunni út allt tímabilið þar sem fimmgangurinn var þeirra sterkasta grein en allir þeirra knapar enduðu í úrslitum. Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Helga Una Björnsdóttir (L)
Elvar Þormarsson
Hans Þór Hilmarsson
Jakob Svavar Sigurðsson
Þórarinn Ragnarsson

 

Hrímnir / Hest.is

Liðið endaði í öðru sæti á síðasta tímabili eftir að hafa sigrað liðakeppnina 2019. Þeir tefldu fram nokkuð breyttu liði 2020 frá því árið áður en nú er það skipað sömu knöpum fyrir utan einn. Benjamín Sandur Ingólfsson hefur bæst við hópinn en Benjamín varð heimsmeistari í gæðingaskeiði í ungmennaflokki á HM2019. Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Viðar Ingólfsson (L)
Arnar Bjarki Sigurðarson
Benjamín Sandur Ingólfsson
Flosi Ólafsson
Siguroddur Pétursson

Skeiðvellir / Árheimar

Liðið  er gamla Eques/Kingsland liðið þó með tveimur nýjum knöpum og nýjum styrktaraðilum. Liðið endaði í fjórða sæti í liðakeppninni 2020 og ætlar sér eflaust hærra á næsta tímabili. Janus Halldór Eiríksson kemur nýr í liðið en hann er deildinni þó nokkuð kunnugur eftir að hafa verið í liði Auðsholtshjáleigu í nokkur ár. Sólon Morthens bætist einnig við hópinn en hann hefur áður keppt í deildinni fyrir nokkrum árum. Sólon og Janus hafa verið að gera það gott á keppnisvellinum og þá sérstaklega Sólon í fimmgangi á Katalínu frá Hafnarfirði og Janus á Blíðu frá Laugabökkum í tölti. Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Sigursteinn Sumarliðason (L)
Davíð Jónsson
Janus Halldórs Eiríksson
Matthías Leó Matthíasson
Sólon Morthens

 

Top Reiter

Top Reiter liðið hefur gert eina breytingu hjá sér en Hanna Rún Ingibergsdóttir hefur bæst í hópinn en hún var í liði Eques/Kingsland á síðasta tímabili. Liðið er líka vel sett með Konráð Val innanborðs en hann virðist óstöðvandi á skeiðbrautinni á hesti sínum Kjarki frá Árbæjarhjáleigu en Konráð náði að tryggja sér þriðja sætið í einstaklingskeppninni eftir að hafa einungis keppt í skeiðgreinum. Top Reiter liðið hefur unnið liðakeppnina fjórum sinnum á síðastliðnum árum 2012,2013, 2014 og 2017. Það er ljóst að með þessa liðsmenn innan borðs ætla þau sér mikið.
Liðsmenn 2021 eru eftirfarandi:

Teitur Árnason (L)
Árni Björn Pálsson
Eyrún Ýr Pálsdóttir
Hanna Rún Ingibergsdóttir
Konráð Valur Sveinsson

Ný heimasíða Meistaradeildarinnar hefur nú litið dagsins ljós. Skoðið hana með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link