,,Mikil gróska í unglinga- og ungmennastarfi“

Ásdís Ósk var eitt af þeim ungmennum sem kepptu á HM 2019
„Mér finnst þetta frábær tímasetning til þess að tilkynna um val á landsliðum því nú eru allir búnir að taka sína keppnishesta á hús og eru að hefja þjálfun vetrarins, það er því kjörið að setja sér markmið strax í upphafi hvað þarf að einblína á.“ Segir Hekla Katharína Kristinsdóttir landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðs Íslands í hestaíþróttum. Hún tilkynnti um landsliðshóp sinn á föstudaginn en í honum eru sautján efnilegir knapar.

ekla Katharína Kristinsdóttir og Kristinn Skúlason formaður landsliðsnefndar undirrita samning U-21 landsliðsþjálfara í desember árið 2019
Sjö nýir knapar voru teknir inn í landsliðshópinn núna, en voru margir aðrir sem komu til greina og var erfitt að velja hverjir myndu fá kallið í hópinn? „Já það var ekkert auðvelt. Við erum svo heppin hér á Íslandi að vera með mikla grósku í unglinga og ungmennastarfi og vegna þess eru margir knapar fyrir utan landsliðshópinn sem setja pressu á þá sem í honum eru að standa sig. Allir þessir knapar sem eru í hópnum stefna á HM á næsta ári og því verður hægt að stilla upp frábæru liði í Herning.“
Eins og áður segir tók Hekla Katharina við fyrir tæpu ári síðan. Stefnan var að sjálfsögðu sett á Norðurlandsmót í ár til þess að ná í dýrmæta reynslu. Var ekki svekkelsi að fá ekki að spreyta sig þar? „Já vissulega er hægt að segja það. Það er sérstaklega það að við fáum ekki reynslu í knapana okkar og eins með Íslandsmót ungmenna það var ekki heldur haldið þannig það vantaði það líka.“
Hekla fær svo það erfiða verkefni að velja fimm ungmenni sem verða í endanlegum landsliðshóp sem fer á HM á næsta ári. Kvíðir hún því vali? „Ég er alls ekki kvíðin en það er öruggt að það verður mjög krefjandi. Nú er að sjá hvernig þessir frábæru knapar sem skipa U-21 árs landsliðið standa sig á komandi keppnistímabili og velja síðan góðan hóp til að fara á HM og ná í árangur fyrir hönd Íslands.“
Blaðamaður Eiðfaxa bjó til kynningarmyndband um U-21 sem má horfa á í spilaranum hér fyrir neðan.