Náttúrulegt jafnvægi
Óskar frá Blesastöðum er all óvenjulegur stóðhestur að gerð. Hann hefur einstakt jafnvægi á hægu tölti og stökki frá náttúrunnar hendi. Jafnvægispunkturinn er akkúrat á réttum stað fyrir keppnishest í hestaíþróttum.
Allt frá því að hann hafði náð þokkalegu valdi á tölti 4 vetra. Sem dæmi þá var hægt að ríða Óskari á litlum baug (volta) á hægu stökki eftir fjögra mánaða tamningu.
Þetta er afar verðmætur eiginleiki í ljósi þess að oftast tekur það mörg ár að þjálfa upp slíkt jafnvægi hjá hesti.
Nánar er fjallað um Óskar frá Blesastöðum í mánaðarritinu Hestar og hestamenn sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið blaðið á vefnum. Hægt að óska eftir lykilorði og áskrift á vefnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH